Hreiðar Levý, lögg. fasteignasali og Betri Stofan Fasteignasala kynna fallega, vel skipulagða og opna 77,8fm, 3ja herbergja íbúð að Álfheimum 19, 104 Reykjavík. Eignin er á neðstu hæð með sérinngangi í fallegu og vel viðhöldnu fjórbýlishúsi. Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, baðherbergi, 2 rúmgóð svefnherbergi og geymslu sem er innan íbúðar.
Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý, lögg. fasteignasala í síma 661-6021 eða hreidar@betristofan.is
Eignin Álfheimar 19 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 202-1309, birt stærð 77.8 fm. Allir birtir fermetrar eru innan eignar.Forstofa: Gengið innum sérinngang. Flísalögð og með fatahengi.
Stofa: Björt, rúmgóð og opin stofa, samliggjandi eldhúsi.
Eldhús: Eldhúsið er opið við stofurýmið. Innrétting með neðri og eftir skápum, flísar á milli skápa. Gott skápa og vinnupláss. Eldavél með helluborði, háfur fyrir ofan helluborð. Aðstaða fyrir ísskáp og uppþvottavél.
Geymsla: Innan eignar. Gengið í geymslu úr stofu.
Svefnherbergi I: Innaf stofu.
Afar rúmgott með þreföldum fataskáp með rennihurðum.
Gangur: Innaf stofu. Gengið í baðherbergi og barnaherbergi úr gangi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með upphengdum vaski og spegli fyrir ofan vask. Upphengdur skápur. Baðkar með sturtuaðstöðu. Gluggi með opnanlegu fagi.
Svefnherbergi II: Rúmgott barnaherbergi.
Sameign: Íbúðinni fylgir aðgengi að sameiginlegu þvottahúsi á hæðinni, innangengt í sameign úr íbúðinni.
Þvottahús: Sameiginlegt þvottahús í kjallara þar sem hver íbúð hefur tengi fyrir þvottavél.
Garður: Stór sameiginlegur garður báðum megin við húsið.
Viðhald: Múrviðgerðir og húsið málað 2019, endurnýjun á þakjárni fyrr. Skólp og dren endurnýjað ca. 2010 skv. fyrri eigendum.
Góð 3ja herbergja íbúð með sérinngangi í fallegu og vel viðhöldnu fjórbýlishúsi í vinsælu, grónu og fjölskylduvænu hverfi í Álfheimunum. Útivistarsvæðið í Laugardalnum er nánast í bakgarðinum, göngufæri í alla helstu þjónsustu í Glæsibæ og Skeifunni. Leik-, grunn- og framhaldskóli eru í göngufæri. Frábær staðsetning miðsvæðis í Reykjavík. Nánari upplýsingar veitir Hreiðar Levý Guðmundsson löggiltur fasteignasali, í síma 661- 6021, tölvupóstur hreidar@betristofan.is.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.