Gimli fasteignasala kynnir: Bjarta og vel skipulagða tveggja til þriggja herbergja íbúð með sér inngangi á jarðhæð í nýlegu lyftuhúsi sem er vel staðsett í Lækjahverfinu. Bjart og opið alrými, eldhús með eyju, tvö góð herbergi, sólrík verönd. Eignin er skráð 80,3fm en að auki er 3,6fm geymsla í same... Sýna meira
Gimli fasteignasala kynnir: Bjarta og vel skipulagða tveggja til þriggja herbergja íbúð með sér inngangi á jarðhæð í nýlegu lyftuhúsi sem er vel staðsett í Lækjahverfinu. Bjart og opið alrými, eldhús með eyju, tvö góð herbergi, sólrík verönd. Eignin er skráð 80,3fm en að auki er 3,6fm geymsla í sameign. Stutt er í alla þjónustu svo sem skóla, leikskóla og verslun. Rafhleðslustöð er við húsið.Nánari upplýsingar veitir Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse, Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 792-7576 eða með tölvupósti til NÁNARI LÝSING: Komið er inn í bjarta og rúmgóða flísalagða forstofu. Úr forstofu er gengið inn í alrými þar sem flæða saman eldhús, borðstofa og stofa með útgengt út á sólríka suð-vestur verönd sem er séreignarreitur. Eldhús er rúmgott með stórri eyju og góðu skápaplássi. Hjónaherbergi er bjart og með góðum skápum. Baðherbergi með innréttingu, walk in sturtu og aðskildri þvottaaðstöðu með innréttingu sem rúmar þvottavél og þurrkara. Barnaherbergi/skrifstofa, sem skráð er geymsla á teikningum, er rúmgott og bjart með skáp og góðum glugga.Innréttingar og skápar eru sérsmíði frá Fanntófell. Eldhús-og baðinnréttingar eru í fallegum lit er nefnist Gladstone Oak og borðplata er marmaralíki. Fatasápar og þvottahúsinnrétting eru hvít með mattri áferð. Innihurðar eru hvítar með mattri áferð, yfirfelldar með felliþröskuldi.Gólfefni eru þýskt Kronotex harðparket í Atlas Oak Beige frá Birgisson.Á baði og í forstofu eru ítalskar Rondine flísar frá Birgisson í Volcano Dark.Alrými 34,7fm er bjart og rúmar eldhús, borðstofu og stofu, parket á gólfum, útgengt út á svalir.Hjónaherbergi 12,0fm er stórt með góðum skápum, glugga til suð-vesturs, parket á gólfi.Herbergi/skrifstofa 8,8fm er skráð á teikningum sem geymsla en nýtist sem herbergi, Skápur, gluggi til austurs, parket á gólfum.Baðherbergi 10,0fm er flísalagt með góðri innréttingu, walk in sturtu og aðskildu rými með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara.Anddyri 5,4fm er bjart, flísalagt, góðir skápar og gólfsíður gluggi.Verönd/Sérafnotareitur 15,3fm er hellulagður.Geymsla 3,6fm er í sameign á jarðhæð ásamt annarri sameign, vagna og hjólageymslu.Niðurlag: Fallega og vel skipulögð íbúð á jarðhæð með sér inngangi. Íbúðin er fallega innréttuð og vandað efnisval. Góð staðsetning innan hverfis. Nánari upplýsingar veitir Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 792-7576, eða sendu fyrirspurn með tölvupósti til