Domusnova hefur fengið í einkasölu bjarta og snotra 2ja herbergja íbúð á 2. hæð að Æsufelli 6. Íbúðin hefur verið endurnýjuð að hluta og var baðherbergi endurnýjað 2021 og íbúðin er nýmáluð að mestu, ofnar hafa verið endurnýjaðir og eldhúsinnrétting er ekki gömul. Geymsla er innan íbúðar og er nýtt ... Sýna meira
Domusnova hefur fengið í einkasölu bjarta og snotra 2ja herbergja íbúð á 2. hæð að Æsufelli 6. Íbúðin hefur verið endurnýjuð að hluta og var baðherbergi endurnýjað 2021 og íbúðin er nýmáluð að mestu, ofnar hafa verið endurnýjaðir og eldhúsinnrétting er ekki gömul. Geymsla er innan íbúðar og er nýtt sem skrifstofa. Mjög vel staðsett eign á góðum stað. Frábær fyrstu kaup eða sem leigueining. Sameign er vel um gengin og má nefna að aðgengi er uppá þak blokkarinnar þar sem er stórfenglegt útsýni yfir alla borgina - hentar vel um áramót. Næsta árs fasteignamat er kr. 40.250.000.Þegar inn er komið verður fyrir anddyri með fatahengi og er geymsla á vinstri hönd en alrými stofu og eldhúss á hægri hönd. Parket er á gólfum sem er farið að láta á sjá. Baðherbergið sem var endurnýjað að öllu leyti 2021 er næst geymslunni og svefnherbergi næst baðherberginu og snýr í suður eins og stofan. Í sameign er læstur sérfrystiklefi sem fylgir þessari eign ásamt vagna og hjólageymslu, húsvarðarþjónusta er í húsinu. Húsfélagið hefur tekjur af útleigu eigna og hefur verið farið í töluverðar framkvæmdir á undanförnum árum.Til að fá söluyfirlit sent strax smellið hérStofa snýr í suður og er stúkuð af frá eldhúsi, parket á gólfi.Eldhús er með ágætri innréttingu.Svefnherbergi er með parket á gólfi, rúmgóður fataskápur, gengið útá svalir sem snúa í suður úr herberginu.Baðherbergi var endurnýjað 2021 á smekklegan hátt og er með handklæðaofni, flísalagt gólf og veggir að hluta, upphengt salerni og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.Geymsla er inní íbúðinni og hafa núverandi eigendur nýtt hana sem skrifstofu, parket á gólfi.Anddyri er rúmgott með fatahengi, parket á gólfi.Sameign er snyrtileg og hefur lyfta, dyrasímar og teppi á jarðhæð verið endurnýjað að undanförnu. Frystiklefi með sérhólfi fyrir íbúðina (læst) er í sameign.Framkvæmdir sem ráðist hefur verið í undanfarin ár eru m.a. íbúð máluð að hluta 2023, baðherbergi endurinnréttað 2021, skipt um ofn í stofu 2020. Í sameign hefur verið skipt um þakpappa að mestu, ný lyfta 2018, og teppi á sameign á jarðhæð endurnýjuð 2020 og nýtt dyrasímakerfi 2022/23 laus fög og gluggar hafa verið endurnýjaðir að hluta. Í samræmi við 2. mgr. 14. gr. laga um sölu fasteigna og skipa er kaupandi upplýstur um að seljendur eru tengdir fasteignasala fjölskylduböndum.Nánari upplýsingar veita:Árni Helgason löggiltur fasteignasali / s.663 4290 / Skrifstofa / s.527-1717 / Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu: Nýtt - Eignin er nýbygging. Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður. Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti. Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti. Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.