Eignamiðlun kynnir:
Glæsileg 197,8 fm efri sérhæð og ris í húsinu við Ægisíðu 92. Arkitekt hússins er Einar Sveinsson. Húsið eitt af þessum fallegu virðulegu húsum við Ægisíðu. Um er að ræða tvær samþykktar íbúðir. Hægt er að nýta íbúðirnar saman eða í sitt hvoru lagi. Glæsilegar samliggjandi stofur með skrautlistum í loftum. Þrennar svalir. Gróinn garður til suðvesturs. Stórglæsilegt útsýni, m.a. sjávar- og fjallasýn.
NÁNARI UPPL. VEITA: Magnea S. Sverrisdóttir lg. fasteignasali s. 861-8511, magnea@eignamidlun.is og Sverrir Kristinsson lg. fasteignasali.Nánari lýsing:Efri hæð: Þegar komið er inn í anddyri, blasa við háir gluggar og hringlaga teppalagður stigi. Stigaholið er rúmgott og bjart, þar eru mjög háir gluggar sem sem setja einstaklega fallegan svip á rýmið. Frá stigapalli er gengið inn í íbúðina.
Hol: Komið er inn í í teppalagt hol með sérsmíðuðum skápum. Veggfóður er á veggjum. Upprunalegur stíll hefur verið látinn halda sér.
Þrjár stofur: Þrjár glæsilegar teppalagðar samliggjandi stofur. Mjög fallegir skrautlistar og rósettur eru í loftum. Svalir. Stórglæsilegt útsýni, m.a. sjávar- og fjallasýn.
Herbergi I: Rúmgott teppalagt hjónaherbergi með skápum. Svalir eru út af hjónaherbergi til austurs.
Herbergi II: Mjög rúmgott teppalagt herbergi (tvö herbergi samkvæmt teikningu) með útbyggðum horngluggum sem eru einkennandi fyrir þetta hús.
Eldhús: Eldhúsið var endurnýjað með fallegri ljósri innréttingu. Borðkrókur og dúklagt gólf.
Baðherbergi: Baðherbergið hefur verið endurnýjað. Sturtuklefi er á baðherbergi. Gólf er flísalagt. Gluggi er á baðherbergi.Lögn fyrir þvottavél.
Íbúðin var endurnýjuð að miklu leyti árið 1991: baðherbergi flísalagt, nýir gluggar, gler, raflagnir og fl. Eldhúsið var endurnýjað árið 2001 og settur nýr sturtuklefi á baðherbergi árið 2008.
Sér geymsla er í kjallara svo og sameiginlegt þvottahús.
Risíbúð:Frá stigapalli á 2. hæð er gengið upp í risið.
Stofa: Komið er inn í parketlagða stofu með stórum kvisti. Svalir eru út af stofu, með tvöfaldri hurð. Stórglæsilegt útsýni.
Eldhús: Eldhúsið var endurnýjað árið 1995. Borðkrókur er í eldhúsi. Gólf er parketlagt.
Herbergi I: Herbergi í vesturenda íbúðar. Gólf er parketlagt.
Herbergi II: Parketlagt hjónaherbergi með skápum. Gluggar í herbergi II sem og í eldhúsi eru útbyggðir sem er einkennandi fyrir húsið.
Baðherbergi: Baðkar með sturtu í. Gólf er flísalagt. Gluggi er á baðherbergi. Geymslurými er innaf baðherbergi.
Geymsluloft er fyrir ofan risíbúð. Sameiginlegt þvottahús er í kjallara.
Framkvæmdir utanhúss: Húsið var málað árið 2012. Sett var dren austanmegin við húsið árið 2000 og klárað að setja hringinn í kringum húsið árið 2008. Frárennslislagnir frá húsi voru fóðraðar í kringum árið 2010.* Járn á þaki hússins var endurnýjað árið 1991 og málað síðast árið 2012. Gluggar á efri hæð og risi voru endurnýjaðir árið 1991. Hiti er í stétt í innkeyrslu frá árinu 2008 og þá var skipt um jarðveg/undirlag fyrir bílskúr sem gert var ráð fyrir inn af innkeyrslu og gömul teikning er til af. Rafmagnslögn hefur verið sett úr rafmagnstöflu 2. hæðar út fyrir norðurvegg tl að hægt verði að tengja við hleðslustöð.
Frábær staðsetning við Ægisíðu. Örstutt í verslanir, sundlaug, kaffihús og helstu þjónustu. Mjög fallegar gönguleiðir og útivistarsvæði í næsta nágrenni.***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook