Hreiðar Levý, lögg. fasteignasali og Betri Stofan Fasteignasala kynna fallega, bjarta og vel skipulagða 97,4fm íbúð á neðstu hæð í fallegu og virðulegu húsi að Ægisíðu 50, 107 Reykjavík. Íbúðin er vel skipulögð og var endurnýjuð fyrir um 10 árum með sérsmíðuðum og vönduðum innréttingum. Íbúðin var endurnýjuð með aðstoð innanhússarkitekts Hönnu Stínu og innréttingar sérsmíðaðar frá Heggi. Gólf er parketlagt eikarplönkum frá Agli Árnasyni. Eldhús með sérsmíðaðri innréttingu. Við endurnýjun var áhersla lögð á góða lýsingu. Ljós eru frá Lúmex og fylgja með. Íbúðin skiptist m.a. í stofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, hol og forstofu. Sér inngangur og sér geymslur. Íbúðin er á neðstu hæð en fjórar íbúðir eru í húsinu. Sér bílastæði er fyrir íbúðina fyrir aftan hús. Fallegur sameiginlegur garður fyrir framan hús.Frábær staðsetning við Ægisíðu í Vesturbænum. Sjávarsíðan er beint fyrir framan húsið með stórkostlegu útsýni, einstakt útivistarsvæði með fallegum göngu og hjólastígum. Skólar á öllum stigum í göngufjarlægð ásamt rómaðri nærþjónustu Vesturbæjarins. Þá er íþróttasvæði Reykjavíkurstórveldisins K.R. í næsta nágrenni. Afar vinsæl og fjölskylduvæn staðsetning.Eignin Ægisíða 50 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 202-8735, birt stærð 97.4 fm.Nánari lýsing: Forstofa: Komið er inn um sér inngang í flísalagða forstofu með fatahengi
Svefnherbergi I: Rúmgott svefnherbergi innaf forstofu.
Stofa: Opin, rúmgóð og björt, samliggjandi eldhúsi.
Eldhús: Falleg sérsmíðuð innrétting með búrskáp og eyju. Gott skápa og vinnupláss.
Eyja er með litlu barborði, spam hellum og háfi fyrir ofan helluborð. Í útskotsglugga eldhúss er eldhúsbekkur með skúffum, bólstraður leðri og ull sem setur skemmtilegan svip á rýmið. Einstaklega fallegt sjávarútsýni út um útskotsglugga.
Herbergjahol: Tengir saman 2 svefnherbergi og baðherbergi. Innbyggður fataskápur í holi.
Svefnherbergi II: Rúmgott
Svefnherbergi III: Gott barnaherbergi.
Baðherbergi: Standsett á vandaðan hátt fyrir um 10 árum síðan. Flísalagt í hólf og gólf, með "walk in" sturtu, upphengdu salerni, handklæðaofni, upphengdum vaski ásamt upphengdum speglaskáp.
Geymsla: Sérgeymsla á sameignargangi á sömu hæð og íbúð. Lítil útigeymsla fylgir einnig íbúðinni.
Sameign: Sameiginlegt þvottahús á sömu hæð og íbúðin. Sértengill fyrir þvottavél og þurrkara.
Bílastæði: Sérbílastæði fyrir aftan hús fyrir eignina.
Lóð: Húsið stendur á fallegri 1.249fm hornlóð. Tyrfður garður með trjám fyrir framan hús.
Ægisíða í Vesturbæ Reykjavíkur er ein virðulegasta og eftirsóttasta gata borgarinnar, með óhindruðu sjávarútsýni og röð fallegra húsa.
Frábær staðsetning við strandlengjuna þar sem útivistarsvæði og gönguleiðir við sjóinn eru í næsta nágrenni.Nánari upplýsingar veitir Hreiðar Levý Guðmundsson löggiltur fasteignasali, í síma 661- 6021, tölvupóstur hreidar@betristofan.is.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.