Valborg fasteignasala kynnir í einkasölu einbýlishús við Aðalgötu 34, 420 Súðavík.
Eignin er samtals 128,7 m² að stærð, samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands. Þar af er bílskúrinn 28,3 m²
Eignin telur forstofu, stofu, eldhús, þrjúsvefnherbergi, baðherbergi og bílskúr.
Húsið "Tröð" stendur við Álftafjörð í Súðavík en óheft útsýni er yfir fjörðinn.
Hér er um að ræða gott fjölskylduhús til að njóta yfir sumartímann eða fyrir ferðaþjónustuaðila.
Óskað er eftir tilboðum í eignina.Sjá staðsetningu hér:Eignin er 136 ára gamalt, vel byggt stafhús, smíðað í Haugasundi í Noregi um 1890 af Svend Foyn en flutt síðan á Langeyri í Álftafirði um 1890.
Árið 1894 var húsið svo flutt að Tröð þar sem það stendur nú.
Nokkrar endurbætur hafa verið gerðar á húsinu á undanförnum árum. Má þar nefna gler í gluggum sem hefur verið endurnýjað, neysluvatns lagnir verið endurnýjaðar og sett upp varmadæla til kyndingar. Stór hitakútur og hefur það dugað eigninni vel hingað til. Húsinu fylgir allur húsbúnaður, húsgögn, góð rúm fyrri 6 manns í 3 svefnherbergjum ásamt tveimur svefnsófum. Fjórir kajakar fylgja húsinu ásamt fjölda þurgalla og öðrum búnaði sem þarf til kæjakaróðurs á sjó ásamt yfir 100 ára gömlu bát.
Við húsið er gróinn garður ásamt sólpalli sem er dásamlegur í vestfirska logninu.
Yndislegt hús fyrir samhenta fjölskyldu eða í ferðaþjónustu.
Allar nánari upplýsingar veita eigendur hússins,
Rúnar Sigurðsson í síma: 660 8159 Valur Sigurðsson: 6947098.
Jón Sigurðsson: 6998557.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.