Flott hús á þrem hæðum í miðbæ Siglufjarðar.
Húsið líklega flutt inn frá Noregi á sínum tíma.
Stór lóð við hliðina á þessu húsi þar sem áður var frystihús sem fauk getur fylgt með í kaupunum.Húsið er timburhús byggt 1928 en hefur að miklu leiti verið endurnýjað bæði úti og inni á síðustu árum.
Húsið hefur verið nýtt til útleigu til bæði til ferðamanna og annara.
Sér íbúð með sér inngangi er í húsinu og í risi eru 4 svefnherbergi sem eru tilbúin til útleigu.
Einnig er í viðbyggðum íbúðargámi, sturtur og sauna.
Á jarðhæð eru þrír inngangar - tveir á vesturhlið sem tengjast stigum tveim upp á efri hæðir og einn á austurhlið sem er sér inngangur fyrir íbúðina á jarðhæð.
Á 1. hæðinni hefur nýlega verði útbúin sér íbúð sem er eldhús, snyrting með sturtu, stofa og tvö svenherbergi. Auk þess er á 1. hæð, hol þaðan sem gegnt er í þvottahús, snyrtingu og sturtu aðstöðu og sauna. Eitt sér aukaherbergi er á 1. hæðinni sem nýtt er sem skriftstofa.
Á miðhæðinni er hol, baðherbergi gott uppgert , eldhús með eldri innréttingu, tvær veglegar stofur og innaf þeim gott svefnherbergi.
Í risi eru svo 4 svefnherbergi á gangi og stór óinnréttuð geymsla sem nær upp í rjáfur. Þar mætti útbúa stofu eða fleiri herbergi.
Samkvæmt teikningum má byggja við húsið bátaskyli eða bílskúr þar sem nú er gámur
Á síðustu árum hefur þak verið endurnýjað, einnig gluggar, ofnar og lagnir undir húsinu.
Upplýsingar gefur Ægir s. 896-8030 eða aegir@borgir.isÍ lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Vill Borgir því skora væntanlega kaupendur á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bæra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 79.900 mvsk.