Íbúð
Endaraðhús á einni hæð í Mosfellsbæ. Skemmtilegt skipulag með opnu rými milli eldhúss, stofu og borðstofu. Mikil lofthæð, gólfsíðir gluggar, nýtt parket og hvítar hurðar í öllu húsinu. Fullfrágengin lóð með hundagerði og steyptu sorptunnuskýli.
Stofa
Stofa í opnu rými með eldhúsi og borðstofu. Gólfsíðir gluggar, mikil lofthæð, útgengi út á verönd og nýtt parket á gólfi.
Eldhús
Hvít sérsmíðuð innrétting með gaseldavél, háfi, uppþvottavél, stóra eyju með ofni og steinplötur. Upphengdir hvítir skápar með sérsmíðaðri eikarplötu og nýtt parket á gólfi.
Svefnherbergi
Þrjú svefnherbergi. Hjónasvíta með opnu fatahengi og skúffueiningum. Eitt herbergi með stiga upp á parketlagt svefnloft. Annað með stórum sérsmíðuðum ljósaspegli. Öll með opið fatahengi með skúffueiningum.
Baðherbergi
Tvö baðherbergi. Eitt í hjónasvítu með baðkari og sturtu, upphengdu salerni með fjarstýringu og skolstút, handklæðaofni og sérsmíðaðum innréttingum. Annað með walk-in sturtu, sérsmíðaðri bambus innréttingu, upphengdu salerni, handklæðaofni, dökkum flísum á gólfi og hvítum flísum á veggjum.
Þvottahús
Þvottahús með fallegri grárri innréttingu, borðplötu, handklæðaofni, fataslá og aðgengi upp á teppalagt geymsluloft með niðurfellanlegum stiga.
Geymsla
Lokuð geymsla inn af bílskúr, geymsluloft í þvottahúsi og 6fm einangruð geymsla á verönd með rennihurð. Geymsluloft í bílskúr.
Bílskúr
Bílskúr 24,8 fm með flísalegu gólfi, grá innréttingu með vaski, niðurfellu vinnuborði, háþrýstidælu með slönguhjóli og stiga upp á rúmgott parketlagt svefnloft. Upphitað bílastæði fyrir allt að 4 bíla og rafhleðslustöð.
Garður
Fullfrágengin lóð með stórri afgirðri timburverönd úr lerki (um 200 fm), hundagerði með gervigrasi, steyptu sorptunnuskýli fyrir framan hús og gasskápi fyrir utan.
Svalir/þak
Stór afgirt timburverönd úr lerki (um 200 fm) með heitum potti, köldu kari, infrarauð sánu, útisturtu, rafmagnstenglum, Ring myndavél og 6fm einangruðri geymslu.