LIND fasteignasala kynnir 2ja herbergja 58,8 m2 búð á 3 hæð í klæddu fjölbýli í innst í Seláshverfi ásamt 21,8 m2 bílastæði í lokaðri bílageymslu samtals 80,6 m2. Sameiginleg bílastæði eru fyrir framan hús. Garður er sameiginlegur. Úr stofu er útgengt á góðar svalir. Eignin er laus við kaupsamning.
Mjög góð staðsetning þ.s stutt er í grunn og leikskóla og í verslun þjónustu í hverfinu, í Norðlingaholti Hvörfum. Fallegar gönguleiðir í Elliðaárdalnum eru í næsta nágrenni ásamt Árbæjarlaug og íþróttasvæði Fylkis. Eldvarnarhurðir fyrir íbúðir voru endurnýjaðar í oktober 2023.Íbúðin skiptist í forstofu/hol, eldhús innan alrýmis, bjarta stofu með útgengi á góðar svalir, rúmgott svefnherbergi og baðherbergi.
Seljandi hefur ekki búið í íbúðinni og er því ekki að fullu kunnugt um ástand allra þátta, en íbúðin þarfnast endurbóta og getur því verið um góð kaup að ræða fyrir laghenta.
Geymsla á 1. hæð er 4 m
2.
Húsið er allt klætt að utan með viðhaldsléttri klæðningu. Stigagangurinn var tekinn í gegn 2020, nýjar eldvarnarhurðir settar 2023 auk annarra framkvæmda utanhúss á árunum 2017-2023..
Staða hússjóðs er góð og húsfélag vel rekið.
// VILDARKORT LINDAR //
Kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar, sem veitir 30% afslátt hjá samstarfsaðilum okkar:
Parki, Z-brautir og gluggatjöld, S. Helgason steinsmiðja, Húsasmiðjan, Húsgagnahöllin, Dorma, Betra Bak, Vídd, Flugger litir og Vodafone.Allar nánari upplýsingar veita:
ELÍN AUÐUR TRAUSTADÓTTIR, LÖGGILTUR FASTEIGNASALI | S. 858-0978 | ELIN@FASTLIND.IS
RAGNAR ÞORSTEINSSON, LÖGGILTUR FASTEIGNASALI | S. 897-3412 | RAGNAR@FASTLIND.ISUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lind fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali metur eignina með sjónskoðun.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
-----------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila
Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.