Valný fasteignasala og Valgeir Leifur Vilhjálmsson löggiltur fasteignasali kynna:
Víðiteigur 6D, 270 Mosfellsbær Snyrtilegt þriggja herbergja raðhús á vinsælum stað í Mosfellsbæ. Eignin skiptist í tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og rúmgott alrými með útgengi á verönd og skjólgóðan garð. Eignin er laus við kaupsamning.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit. Smelltu hér til að bóka skoðun.
Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 82.1 m². Eign merkt 01-01, fastanúmer 208-4710 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Lýsing og skipulag eignar: Forstofa með flísum á gólfi. Eldhús er opið inn í stofu með snyrtilegri innréttingu, ofni, helluborði og háfi. Uppþvottavél fylgir. Rúmgóður borðkrókur er við eldhús. Harðparket er á gólfi. Stofa er með harðparketi á gólfi og útgengi út á skjólgóða verönd og gróinn garð. Hjónaherbergi með harðparketi á gólfi og hvítum fataskáp. Svefnherbergi með harðparketi á gólfi og hvítum fataskáp. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með hvítri innréttingu og baðkari. Þvottahús er rúmgott með máluðu gólfi.