Nýtt í sölu! Hafnarbraut 14A Kópavogi - Virkilega glæsileg 2ja herb. íbúð með verönd - Frábær fyrstu kaup!
Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir glæsilega og vel skipulagða 2ja herbergja 58,9 fermetra íbúð á 1. hæð í nýlegu fjölbýli með lyftu við Hafnarbraut 14A í Kópavogi. Íbúðin er með afgirtri verönd til vesturs og rúmgóðri geymslu innan íbúðar. Vandaðar og sérsmíðaðar innréttingar frá Voke-III sem ná upp í loft og akrílsteinn (Durastone) á borðum.
Húsið er afar fallegt byggt árið 2021 af ÁF Húsum ehf. og er viðhaldslítið (álklæðningarkápu) með fallega frágenginni lóð. Rafrænt loftræstikerfi með útsogi í votrýmum og geymslu. Sameiginleg stæði fyrir framan hús.
Um er að ræða eftirsótta staðsetningu á Kársnesi í Kópavogi.
Nánari lýsing eignar:Forstofa: Með harðparketi á gólfi, skápum og fatahengi.
Alrými samanstendur af stofu og eldhúsi.Eldhús: Með harðparketi á gólfi og fallegri eldhúsinnréttingu með skápum upp í loft. Electroulux bakaraofn, spansuðu helluborð og vifta. Innbyggður kæliskápur með frysti og innbyggð uppþvottavél.
Stofa: Með harðparketi á gólfi. Stofa rúmar setustofu og borðstofu. Opin að hluta við eldhús og útgengi á verönd.
Verönd: Er afgirt og snýr til vesturs.
Svefnherbergi: Með harðparketi á gólfi og góðum skápum á heilan vegg sem ná upp í loft.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og hluta veggja. Flísalögð sturta með glerþili. Falleg innrétting við vask og speglaskápur fyrir ofan með lýsingu undir. Upphengt salerni, handklæðaofn og útloftun. Í innréttingu er gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara ásamt geymslurými fyrir ofan.
Geymsla: Er staðsett inn af íbúð. Rúmgóð með harðparketi á gólfi.
Sameiginleg vagna- og hjólageymsla: Er staðsett í sameign hússins. Málað gólf.
Húsið að utan: Lítur vel út og virðist vera í góðu ásigkomulagi. Viðhaldslítið hús með fallegri álklæðningu.
Lóðin: Er frágengin og vel hirt.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is