Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið - Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.
*
ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina:Vatnsnesveg 28, 230 Reykjanesbæ, íbúð 02-01, fastanúmer 209-1146 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin er skráð 59.3 fm skv. FMR. Um er að ræða risíbúð svo nýtanlegir fermetrar eru töluvert fleiri en skráð stærð.
** TILVALIN FYRSTU KAUP **Virkilega sæt og litrík eign með tveimur rúmgóðum svefnherbergjum mjög miðsvæðis í Myllubakkaskóla hverfi, Reykjanesbæ. Eignin samanstendur af holi, þar er fellistigi upp á panilklætt háaloft, flísalögt baðherbergi með sturtubaðkari, eldhús sem rúmar vel eldhúsborð, tvö rúmgóðum svefnherbergi, annað hefur innangengt fataherbergi. Í stofu er útgengt út á litlar svalir í suður.
Nánari lýsing: Komið er inn í sameiginlega forstofu með miðhæð. Steyptur stigi liggur upp í risíbúð úr forstofu. Á
holi eru flísar.
Stofa er með nýlegu harðparketi á gólfi, úr stofu er gengið út á flísalagðar
svalir.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með ágætu harðparketi á gólfum, stærra herbergið með
geymslu sem nýtt er sem fataskápur.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum að hluta, baðkari með sturtuaðstöðu, og hvítri vaskinnréttingu.
Eldhús er með ljósri innréttingu og góðau skápaplássi, flísar á milli efri og neðri skápa, bökunarofn með helluborði, flísar á gólfi og
borðkrókur. Tengi fyrir þvottavél er við enda innréttingar. Fellistigi á holi liggur upp á
geymsluloft með lítilli lofthæð, plastparketi á gólfi og hefur verið klætt með panel í loft og veggi.
Ytra birði hússins er klætt eldri, viðhaldsléttri klæðningu, lóð er nýtt sameiginlega.
Nánari upplýsingar og skoðunarbókanir: Unnur Svava Sverrisdóttir, Löggiltur fasteignasali, í síma 868-2555, tölvupóstur unnur@allt.is.
ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið - Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.