Eignamiðlun kynnir:Virkilega falleg og rúmgóð 105.5 fm, 3ja herbergja útsýnisíbúð á 3ju hæð með tvennum svölum og stæði í bílageymslu að Valshlíð 16, 102 - Hlíðarendi. Íbúðin er á 3ju hæð með aukinni lofthæð, gólfsíðum gluggum, vönduðum innréttingum frá danska fyrirtækinu JKE sem ná alveg upp í loft... Sýna meira
Eignamiðlun kynnir:Virkilega falleg og rúmgóð 105.5 fm, 3ja herbergja útsýnisíbúð á 3ju hæð með tvennum svölum og stæði í bílageymslu að Valshlíð 16, 102 - Hlíðarendi. Íbúðin er á 3ju hæð með aukinni lofthæð, gólfsíðum gluggum, vönduðum innréttingum frá danska fyrirtækinu JKE sem ná alveg upp í loft , blöndunartæki, handlaugar og salerni eru frá Tengi, helluborð, ofn og uppþvottavél frá Miele, terrazzo kvartssteinn á borðum frá Granítsmiðjunni og ljósahönnun frá LUMEX. Valshlíð 16, íbúð 03-25 er 3 herb.íbúð ásamt stæði í bílageymslu sem merkt er 01C11.Íbúðin er skráð 90,3 fm og sérgeymsla merkt 01 -161 er skráð 15,2 fm, samtals birt stærð er 105.5 fm. Svalir eru til suðvesturs skráðar 9.4 fm og norðurs skráðar 3.7 fm.Vinsamlega bókið skoðun hjá Herdísi: * Glæsilegt útsýni* Tvö svefnherbergi* Vandaðar innréttingar og tæki* Stæði í bílageymslu* Lyfta* Tvennar svalir* Aukin lofthæð* Smelltu hér fyrir söluyfirlit.Nánari lýsing:Forstofa/gangur: Harðparket á gólfi, fataskápar úr svartri eik og góðum glugga. Svefnherbergi I: Harðparket á gólfi, fataskápar úr svartri eik og útgengi út á rúmgóðar svalir sem snúa í suður.Baðherbergi: Flísar á gólfi, falleg innrétting úr svartri eik og fallegur terrazzo kvartssteinn á borði. Góður sérsmíðaður speglaskápur, rúmgóð walk-in sturta, handklæðaofn og innrétting (lökkuð) fyrir þvottavél og þurrkara.Eldhús, borðstofa og stofa eru í opnu og björtu rými. Harðparket á gólfi. Eldhús: Glæsileg eldhúsinnrétting úr svartri eik og lituðu lakki sem nær alveg upp í loft. Fallegur terrazzo kvartssteinn er á borði, ofn í vinnuhæð og innfelldur ísskápur fylgir með. Falleg eyja með góðu skápaplássi skilur á milli eldhús, borðstofu og stofu. Eyjan er með terrazzo kvartssteini á borði, span helluborði og viftu þar fyrir ofan. Stofa/borðstofa: Harðparket á gólfi, stórir útsýnisgluggar og útgengi út á norður svalir. Svefnherbergi II: Harðparket á gólfi og fataskápur úr svartri eik Geymsla: Afar rúmgóð og með aukinni lofthæð.Í kjallara er stæði í bílageymslu og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Fyrirhugað fasteignamat 2023 :76.650.000 kr.HÚSIÐ: Byggingin er viðhaldslítil, húsið klætt að utan með álklæðningu. Gluggarnir eru vandaðir danskir ál tré gluggar frá Velfac sem hafa það einkenni að vera með hátt einangrunargildi fyrir hita og hljóði.GARÐURINN: Garðurinn er einstaklega fallegur og skjólgóður. Hann er lokaður af með húsunum sem gefa gott skjól og frið frá iðandi umferð miðbæjarins með upphituðum gönguleiðum með snjóbræðslu í inngarði. Í hönnun garðs er gert ráð fyrir skemmtilegum runnum og trjám ásamt borðum og bekkjum og upplýstu leiksvæði fyrir börn, sem gerir svæðið mjög fjölskylduvænt.HÖNNUÐIR: Húsin eru hönnuð af Alark Arkitektum og er hönnunin mjög metnaðarfull og vönduð. * SÖLUSÍÐA MEÐ NÁNARI UPPLÝSINGUM OG TEIKNINGUM.Nánari upplýsingar veitir Herdís Valb. Hölludóttir löggiltur fasteignasali og lögfræðingur, í síma 6946166, tölvupóstur eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma 588-9090Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.Heimasíða EignamiðlunarEignamiðlun á Facebook