Íbúð
Íbúð á 3. hæð í 3-5 hæða nýbyggingu. Skiptist í anddyri, opið rými fyrir eldhús og stofu/borðstofu með útgengi á svalir, 3 svefnherbergi, gang, baðherbergi og þvottaherbergi. Innréttingaþema: Mjöll 2.
Stofa
Opið rými með eldhúsi, útgengi á suðursvalir og gólfsíðum glugga.
Eldhús
Með eyju, ljósar innréttingar, ljósyrjóttur quartz-steinn á borðum og milli skápa. Blöndunartæki úr burstuðu stáli.
Svefnherbergi
Rúmgott og bjart hjónaherbergi með góðum fataskápum. Tvö rúmgóð svefnherbergi með fataskápa.
Baðherbergi
Með walk-in sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Leirljósar steinflísar á gólfi og veggjum, ljós innrétting og speglaskápur með lýsingu. Blöndunartæki úr burstuðu stáli.
Þvottahús
Með ljósri innréttingu, leirljósum gólfflísum og vaski. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla
Sérgeymsla í kjallara (7,4 fm) merkt 0067. Sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur í kjallara.
Bílskúr
Bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar þar sem íbúar hafa forgang.
Garður
Sameiginlegur opinn innri garður sem hver íbúð hefur aðgang að.
Svalir/þak
Suðursvalir með útgengi úr stofu/borðstofu.
Félagssvæði
Sameiginlegur innri garður, hjóla- og vagnageymslur, bílakjallari.
Tæki
Gæðaraftæki frá Siemens í eldhúsi. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara í þvottaherbergi.
Svæði
Miðsvæðis í Reykjavík (póstnúmer 102) á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta við Öskjuhlíð. Öll helsta þjónusta í göngu/hjólafæri: samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða, iðandi mannlíf og stórir vinnustaðir.