Borgir fasteignasala kynnir í einkasölu eignina Vallartröð 10, 200 Kópavogur, nánar tiltekið eign merkt 00-01, fastanúmer
206-5865 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin Vallartröð 10 er skráð sem hér segir 2ja herbergja íbúð en búið er að færa eldhúsið inní stofu þannig að í dag er eignin nýtt sem 3ja herbergja íbúð
Birt stærð 59.1 fm.
Nánari upplýsingar veita:
Bjarklind Þór, lgf í síma 6905123, tölvupóstur Bjarklind@borgir.is.
Jóhanna M Jóhannsdóttir,lgf, í síma 8200788, tölvupóstur johanna@borgir.isUm er að ræða 2ja herbergja íbúð með sérinngangi í kjallara í barnvænu hverfi.
Frábær fyrstu kaup.- Nýleg eldhúsinnrétting
- Nýlegar hurðar
- Nýlegt harðparket
- Ný rafmagnstafla
- Búið að skipta um frárennsli og dren fyrir framan hús (norðan megin)
Anddyri: með flísum á gólfi.
Þvottahús: með flísum á gólfi, tengi fyrir þvottavél. Í þvottahúsi eru inntök fyrir hita.
Hol/gangur: með harðparketi, skápur eða lítil geymsla.
Stofa: björt stofa í norður með harðparketi á gólfi.
Herbergi: Rúmgott herbergi með harðparketi á gólfi.
Eldhús: rúmgott eldhús með nýlegri hvítri innréttingu, tengi fyrir uppþvottavél og nægt pláss fyrir eldhúsborð, harðparket á gólfi.
Baðherbergi: nýlega endurnýjað, flísar á veggjum og gólfi, sturta sem gengið er inn í, handklæðaofn, litlum glugga og upphengt salerni.
Geymsla: köld geymsla
Sameiginleg stór lóð og bílastæði við húsið. Íbúðin er vel staðsett í litlu fjölbýli í göngufæri frá allri helstu þjónustu, verið er að bæta við leikskóla í hverfinu sem opnar næsta haust. Kópavogsskóli, Mennaskólinn í Kópavogi, Kópavogslaug, Heilsugæsla Kópavogs, Krónan, Bónus er í göngufæri.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Vill Borgir því skora væntanlega kaupendur á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bæra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 70.000 mvsk.