Kjöreign ehf., fasteignasala, Ármúla 21, Reykjavík, sími 533-4040 kynnir glæsilegt nýlegt endaraðhús með þremur rúmgóðum svefnherbergjum á einni hæð við Urriðalæk, Árborg. Birt stærð er 114,4 fm. Lýsing. Forstofa, forstofuherbergi, stofa, eldhús, þvottahús og geymsla, baðherbergi og tvö svefnherbergi. Tvær stakar byggingar á lóðinni. Nánari lýsing. Flísalögð forstofa með skáp. Forstofuherbergi með skáp. Rúmgóð stofa með rennihurð út á sólpall. Eldhús innaf stofunni með góðri innréttingu frá HTH og AEG tækjum. Eldhúsið er með stórri eyju. Rúmgott þvottahús með innréttingu og innaf þvottahúsinu er góð geymsla, rennihurð á milli. Rúmgott barnaherbergi með skáp og gott hjónaherbergi með skáp. Rúmgott þvottahús með innréttingu. Sturta og baðker í baðherberginu og góð innrétting. Útihurð er úr baðherberginu. Harðparket er á gólfum, en gólfflísar á þvottahúsinu. Gólfhiti er í húsinu. Aukin lofthæð og innfelld loftalýsing. Vandað timburhús, klætt að utanverðu með fallegri klæðningu, steinflísar. Lóðin er fullfrágengin. Sólpallar eru ca. 70 fm. Steypt bílaplan. Geymsluskúr úr járni, óeinangraður. Bakvið húsið er 14 fm. timburbygging, einangruð og með gluggum. Ekkert formlegt húsfélag er starfandi.
Vel skipulagt endaraðhús í lokaðri götu. Gólfhiti. Mjög gott skipulag, rúmgóð herbergi. Húsið er byggt árið 2019. Aukin lofthæð. Stutt í alla þjónustu, skóla og leikskóla.
Upplýsingar gefa sölumenn Kjöreignar í síma 533-4040 eða á kjoreign@kjoreign.is Dan Wiium lögm. og lögg. fasteignasali gsm. 896-4013 eða dan@kjoreign.is Ásta María Benónýsdóttir lögg. fasteignasali gsm. 897-8061 eða asta@kjoreign.is