Íbúð
Tveggja hæða hús teiknað af Agli Guðmundssyni arkitekt. Skiptist í 104,7 fm aðalhæð og 88,6 fm efri hæð. Aukin lofthæð yfir efri hæð, brasilísk furu í loftum.
Stofa
Rúmgóð stofa með flísum á gólfi og fallegum arni. Gluggar til suðurs, vesturs og norðurs. Útgengi á verönd.
Eldhús
Með flísum á gólfi, fallegri viðar eldhúsinnréttingu, flísum á milli skápa, bakaraofni, keramik helluborði og tengum fyrir uppþvottavél. Borðkrókur og gluggar til suðurs og austurs.
Svefnherbergi
Neðri hæð: Svefnherbergi I með teppi, skápum og norðurglugga. Efri hæð: Stórt hjónaherbergi með parket, skápum, vesturglugga og útgengi á svalir. Svefnherbergi III með parket, skápum og austurglugga. Svefnherbergi IV með parket og vesturglugga. Öll svefnherbergi á efri hæð með aukna lofthæð.
Baðherbergi
Baðherbergi I (neðri hæð): Flísalagt með sturtu, salerni og vaski. Norðurgluggi. Baðherbergi II (efri hæð): Endurnýjað 2020 með flísum, gólfhita, stórri flísalagðri sturtu með Hansa blöndunartækjum, skápaplássi, innréttingu við vask með speglaskáp, upphengt salerni, handklæðaofni og suðurglugga.
Þvottahús
Þvottaherbergi á neðri hæð með flísum, vinnuborði, vaski, tenglum fyrir þvottavél/þurrkara með hækkun, stæði fyrir auka kæli-/frystiskáp. Austurgluggi og útgengi á stétt.
Geymsla
Útigeymsla (7 fm) við gafl á bílskúr. Lokuð súðageymsla í sjónvarpsstofu á efri hæð.
Bílskúr
Frístandandi 40,5 fm bílskúr með nýju stáli á þaki og 2mm áli á þakköntum. Rafmagnsopnun á hurð. Gluggar til norðurs, austurs og suðurs. Möguleiki á aukaíbúð.
Garður
Falleg 691,0 fm gróin lóð með hellulögðum bílastæðum (snjóbræðsla að hluta), tyrfðum flötum og fallegum gróðri.
Svalir/þak
Rúmgóð afgirt verönd snýr til suðurs og vesturs með kvöldlýsingu í grindverki og markísu. Svalir snúa inn í bakgarð til vesturs.