OPIÐ HÚS - Miðvikudaginn 17. júlí milli kl. 16:45 og 17:15- Verið velkomin!STÓRGLÆSILEG 107,4 FM. ÍBÚÐ Í LYFTUHÚSNÆÐI MEÐ VÖNDUÐUM INNRÉTTINGUM, SUÐVESTUR SVÖLUM OG SÉR STÆÐI Í LOKAÐRI BÍLAGEYMSLU.Samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands er birt flatarmál eignarinnar 107,4 fm.Um er að ræða fallega og rú... Sýna meira
OPIÐ HÚS - Miðvikudaginn 17. júlí milli kl. 16:45 og 17:15- Verið velkomin!STÓRGLÆSILEG 107,4 FM. ÍBÚÐ Í LYFTUHÚSNÆÐI MEÐ VÖNDUÐUM INNRÉTTINGUM, SUÐVESTUR SVÖLUM OG SÉR STÆÐI Í LOKAÐRI BÍLAGEYMSLU.Samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands er birt flatarmál eignarinnar 107,4 fm.Um er að ræða fallega og rúmgóða 3-4ra herbergja íbúð á 4. hæð (efsta hæð) í vönduðu steinsteyptu lyftuhúsnæði byggðu árið 2020 með fallegu útsýni.Íbúðin er skráð 99,9 fm. og sér geymsla 7,5 fm. Svalir eru skráðar 8,6 fm. Góð lofthæð er í íbúðinni. Allar innréttingar í íbúðinni eru frá HTH. Gengið er inn í rúmgóða forstofu, strax til vinstri við inngang er baðherbergið en til hægri er hjónaherbergið. Inn af forstofunni er alrými, en þar er stofan opin í eldhúsið og einnig borðstofan þar inn af. Möguleiki er að setja upp vegg þar sem borðstofan er nú og bæta við þriðja svefnherberginu eins og kemur fram á teikningum. Annað svefnherbergið er við hliðina á borðstofunni. Stórir gluggar eru í íbúðinni. Góð 7,5 fm. sér geymsla fylgir íbúðinni á 1. hæð. Einnig er sameiginleg vagna- og hjólageymsla.Forstofa: Rúmgóð með góðum fataskáp og parket á gólfi.Stofa: Björt með parketi á gólfum, mikil lofthæð, gengið út á suðvestur, sólar svalir, fallegt útsýni.Borðstofa: Einnig mjög björt og rúmgóð með fallegu útsýni, parket á gólfi.Eldhús: Glæsileg innrétting, gott skápa- og borðpláss, span helluborð og parket á gólfi. Innbyggð uppþvottavél fylgir.Baðherbergi: Flísalagt með Marazzi flísum, handklæðaofn, sturta með gólfniðurfalli og glervegg, innrétting með speglaskáp og við handlaug, upphengt salerni, innrétting fyrir þvottavél og þurrkara.Svefnherbergin: Bæði herbergin eru rúmgóð með parketi á gólfum, innbyggðir góðir fataskápar.Svalir: Góðar 8,6 fm. skjólgóðar útsýnis svalir með góðri grillaðstöðu, snúa í suð-vestur með útsýni.Geymsla: Sér 7,5 fm. geymsla fylgir á 1. hæð.Stæði í bílageymslu: Gott stæði í lokaðri bílageymslu, merkt B20.Sameign: Snyrtileg sameign og stigagangur, sameiginleg rúmgóð vagna- og hjólageymsla.- Leyfi er fyrir að setja upp svalalokun.- Ljósleiðari er komin inn í íbúðina. - Myndavéladyrasími.- Nálægt golfvelli Odds - Urriðavelli. Fjölbýlishúsin Urriðaholtsstræti 14-16 og 18-20 eru með samtals 38 íbúðum í 2 byggingum, samtals 19 íbúðir í hvorri byggingu. Byggingarnar eru tengdar saman með bílageymslu fyrir 28 bíla neðanjarðar. Á jarðhæð eignarinnar er atvinnuhúsnæði, nánar tiltekið 2 rými í húsi nr. 14-16 og þrjú rými í húsi nr. 18-20. Hús nr. 14-16 er 5 til 6 hæðir með tveim stigahúsum. Hús nr. 18-20 er 4 til 5 hæðir með tveim stigahúsum. Lóðin er sameiginleg.Stílhrein eign fyrir vandláta í Urriðaholti, Garðabæ. Stutt í grunn- og leikskóla, verslanir og þjónustusvæði sem og góðar samgönguæðar sem stytta leiðir í allar áttir . Útsýni er úr íbúðinni til suðurs að Reykjanesi sem og til sjávar og til norðurs yfir Heiðmörkina. Fáein fótspor í helstu útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins, ósnortnar náttúru, hjóla- og gönguleiðir við Heiðmörk. Sjá nánar um Urriðaholt: www.urridaholt.is Allar nánari uppl. og skoðun veitir: Jóhann Friðgeir, lgf. GSM: 896-3038 e-mail: