Kristján Þór Sveinsson hjá Helgafell fasteignasölu kynnir:Nýleg glæsileg fjögurra herbergja íbúð á jarðhæð í fjórbýlishúsi neðst í Úlfarsárdal, 113 Reykjavík. Húsið var byggt 2018 og stendur á fallegum stað.Eignin er á jarðhæð, merkt 0001 og skráð 167,8 fm., þar af er 23,5 fm. bílskúr.EIGNIN ER SELD... Sýna meira
Kristján Þór Sveinsson hjá Helgafell fasteignasölu kynnir:Nýleg glæsileg fjögurra herbergja íbúð á jarðhæð í fjórbýlishúsi neðst í Úlfarsárdal, 113 Reykjavík. Húsið var byggt 2018 og stendur á fallegum stað.Eignin er á jarðhæð, merkt 0001 og skráð 167,8 fm., þar af er 23,5 fm. bílskúr.EIGNIN ER SELD Nánari lýsingKomið er úr sameign inn í forstofu með góðum skápum frá HTH.Viðarparket frá Parka á gólfum, flísar á baðherbegi og þvottahúsi.Úr forstofu er komið inn í aðalrýmið sem er bjart og rúmgott. Útgengi á tæplega 60 fm. viðarpallur til suðurs, smíðaður úr Lerki.Eldhús með sérsmíðari innréttingu frá Rafha, flísar að hluta á vegg, steinborðplata frá Rein, niðurfellt span helluborð og niðurfeldur vaskur.Uppþvottavél og vínkælir fylgja með.Úr eldhúsi er útgengi á hellulögn til austurs. Björt borðstofa / stofa með gólfsíðum gluggum.Þrjú rúmgóð svefnherbergi, tvö með fataskápum. Flísalagt baðherbergi með upphengdu salerni, rúmgóðum sturtuklefa, frístandandi baðkari og innréttingu frá HTH. Svört blöndunartæki frá Tengi.Þvottahús / geymsla er innst á gangi. Flísalagt með skolvaski, hillum og skápum og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.23,5 fm. bílskúr merktur 0105. Gott hillu og borðpláss, epoxy á gólfi, skápur og vaskur. Bílskúrshurðaopnari.Hjóla- og vagnageymsla í sameign.Anddyri hússins er flísalagt og stigahús teppalagt. Gluggar eru ál-tré VELFAC gluggar, málaðir hvítir að innan. Gólfhiti er í íbúðinni, en ofnakerfi í sameign, geymslu og bílskúr.Loftræsting, úr gluggalausum rýmum, er með vélrænu útsogi upp úr þaki eða geymslum í kjallara og bílskúrum.Húsið er staðsteypt að öllu leiti, tvær hæðir og jarðhæð, einangrað að utan og klætt með álklæðningu. Snjóbræðsla er undir stétt framan við og niður með húsi.Gullfalleg íbúð á eftirsóttum stað í Úlfarsárdal. Húsið stendur neðst í dalnum með ósnortna náttúru við lóðarmörk.Stutt í leik- og grunnskóla, Borgarbókasafn, Dalslaug og íþróttasvæði FRAM.Nánari upplýsingar veita:Kristján Þór Sveinsson, löggiltur fasteignasali, s: 898-6822 / ----------------------------------------------------------Heimasíða Helgafells fasteignasöluFacebook síða Helgafells- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 79.980,- m/vsk.Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.