NÝTT Í SÖLU - TRYGGVAGATA 13. GLÆSILEG NÝ PENTHOUSE ÍBÚÐ Í NÝJU GLÆSILEGU LYFTUHÚSI Á BESTA STAÐ VIÐ REYKJAVÍKURHÖFN. VÖNDUÐ EIGN Á EFSTU HÆÐ Í SÉRFLOKKI MEÐ EINSTÖKU ÚTSÝNI. TVENNAR STÓRAR SVALIR (SU-NO)Ingólfur Gissurarson lg.fs. sýnir eignina. Pantið skoðun í síma: 896-5222, eða ... Sýna meira
NÝTT Í SÖLU - TRYGGVAGATA 13. GLÆSILEG NÝ PENTHOUSE ÍBÚÐ Í NÝJU GLÆSILEGU LYFTUHÚSI Á BESTA STAÐ VIÐ REYKJAVÍKURHÖFN. VÖNDUÐ EIGN Á EFSTU HÆÐ Í SÉRFLOKKI MEÐ EINSTÖKU ÚTSÝNI. TVENNAR STÓRAR SVALIR (SU-NO)Ingólfur Gissurarson lg.fs. sýnir eignina. Pantið skoðun í síma: 896-5222, eða ! MUNIÐ SÓTTVARNIR OG MÆTIÐ MEÐ RÍMU Í SKOÐUN ! Valhöll fasteignasala, Síðumúla 27, sími:588-4477 og Ingólfur Gissurarson löggiltur Fasteignasali og leigumiðlari, síðan 1989, sími:896-5222, kynna: Ný, glæsileg afar rúmgóð 131,6 fm 3ja herbergja íbúð á efstu hæð í nýju (2017) lyftuhúsi á frábærum stað við höfnina í Reykjavík. Efsta hæðin er inndreginn bæði til norðurs og suðurs. Stórar svalir til suðurs og norðurs með glæsilegu ÚTSÝNI. Vandaðar innréttingar, gólfhiti, tvö baðherbergi og fl. Rúmgott stæði í bílageymslu í kjallara. Ekkert var til sparað við byggingu hússins og er sameign og allur frágangur til fyrirmyndar. Íbúðin er afar björt og með aukinni lofthæð (um 2,7 mtr). SKIPULAG: Rúmgott hol með góðum rennihurðaskáp. Baðherbergi flísalagt með walk inn sturtu, vegghengdu salerni og handklæðaofni. Þvottaherbergi með innréttingu (m.vaski) og smá geymsluaðstaða. Rúmgóð borðstofa og eldhús með eyju / deski. Hvít háglans innrétting með hvíttaðri límtrés borðplötum. AEG tæki, m.a. innbyggð uppþvottavél og ísskápur. Rúmgott hjónaherbergi með miklum hvítum háglans skápum, útgengt útá stórar liðlega 30 fm suður svalir meðfram allri íbúðinni. Einnig útgengt á svalirnar úr borðstofunni. Innaf hjónaherberginu er flísalagt baðherbergi með baðkari með sturtu í, handklæðaofni og hvítri háglans innréttingu. Útsýni eru af suður svölunum yfir til Bláfjalla og Reykjanes. Stofa með útgengt útá stórar liðlega 20 fm norður svalir meðfram allri íbúðinni. Glæsilegt útsýni þar yfir Reykjavíkurhöfn, Hörpuna, Vífilfell, Hengilinn, Esjuna, Skarðsheiði, Akrafjall, Snæfellsnes, Jökulinn og sundin blá. Innaf stofu er stórt herbergi eða stofa sem lokast með rennihurð. Ledlýsing er í svalahandriðum beggja megin. Ledlýsing í allri íbúðinni með dimmerum. Extra þykk gólfplata með gólfhita. Sérgeymsla í kjalla. Lyklalaust aðgengi. Sameiginleg hjólageymsla á jarðhæðinni. Innréttingar og skápar eru frá HTH. Extra breitt stæði í bílageymslu í kjallara, innangengt úr sameign í það. GÓLFEFNI: Flísar á baðherbergjum og þvottahúsi. Eikarparket á öðrum gólfum. HÚSSJÓÐUR: ca 20 þúsund pr. mán. Ljósa og hitastýring er í íbúðinni frá ABB, free@home (snjalllausn) stýrir hita og dimmar ljósin. Allur frágangur 1. flokks. Einstaklega fallegt anddyri með marmara á gólfum og veggskreyting með listaverkum eftir Leif Breiðfjörð. Hljóðdempandi undirlag og teppi á göngum og stigahúsi. Allar nánari upplýsingar og milligöngu um skoðun annast Ingólfur Gissurarson löggiltur Fasteignasali og leigumiðlari S:896-5222 Ertu í fasteignahugleiðingum, Þarftu að selja ? Ég veiti afburða þjónustu og eftirfylgni, byggða á 32 ára samfelldu starfi við fasteignasölu á Íslandi, sanngjörn söluþóknun, sláið á þráðinn í síma 896-5222. VALHÖLL FASTEIGNASALA SÍÐAN 1995 - FARSÆL OG ÖRUGG FASTEIGNAVIÐSKIPTI - EINGÖNGU LÖGGILTIR FASTEIGNASALAR OG LÖGFRÆÐINGAR ANNAST ÞÍN SÖLUMÁL HJÁ OKKUR. VALHÖLL ER FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI SAMKVÆMT GREININGU CREDITINFO 2015 til 2020, EN AÐEINS 2 % FYRIRTÆKJA Á ÍSLANDI NÁÐU ÞEIM GÆÐASKILYRÐUM. Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.