HÚSASKJÓL KYNNIR:EIGNIN ER KOMIN AFTUR Á SÖLU - (FÉLL Á FYRIRVARA) Böðvar Reynisson löggiltur fasteignasali veitir allar upplýsingar í síma 766-8484 eða Eignin er laus við kaupsamning.Einstaklega falleg og björt íbúð á 3. hæð, sem er hönnuð í anda "New York loft style" í hjarta miðborgarinnar með s... Sýna meira
HÚSASKJÓL KYNNIR:EIGNIN ER KOMIN AFTUR Á SÖLU - (FÉLL Á FYRIRVARA) Böðvar Reynisson löggiltur fasteignasali veitir allar upplýsingar í síma 766-8484 eða Eignin er laus við kaupsamning.Einstaklega falleg og björt íbúð á 3. hæð, sem er hönnuð í anda "New York loft style" í hjarta miðborgarinnar með stórbrotnu útsýni yfir Reykjavíkurhöfn, hafið og fjöllin ásamt allri þeirri þjónustu og afþreyingu sem miðborgin hefur upp á að bjóða í göngufjarlægð. Eignin er í vönduðu lyftuhúsi, byggðu 2017, og er eignin öll hönnuð með hliðsjón af miklum gæðum, þægindum og glæsileika. Mikið er lagt upp úr hljóðeinangrun í húsinu, jafnt gagnvart hljóðum utanhúss sem og milli hæða og íbúða. Aukin lofthæð. Hjólastólaaðgengi er í allar íbúðir og sameignarrými hússins. Íbúar geta sótt um íbúakort bílastæðasjóðs. Skipting eignar:Alrými sem samanstendur af stofu/borðstofu/eldhúsi forstofugangi og yfir í opið svefnherbergi. Baðherbergi, þvottahúsi, gestasalerni, rúmgóðum suðursvölum og geymslu í kjallara. Sameign:Inngangar í húsið eru frá Tryggvagötu og Geirsgötu og lyklalaust aðgengi er í sameign og í íbúðir. Einstaklega glæsileg sameign, með marmara á gólfum á jarðhæð og sjónsteypu ásamt listaverkum eftir Leif Breiðfjörð. Tveir stigagangar eru í húsinu með lyftum og stigahúsum með hljóðdempandi teppi, sjónsteypu og glerhandriðum. Dagnotkunar hjóla og vagnageymsla er á jarðhæð og langtíma hjóla og vagnageymsla í kjallara. Íbúð:Vandað eikarparket er á öllum gólfum að undanskildum votrýmum þar sem eru vandaðar flísar. Eldhústæki frá AEG, Kludi blöndunartæki og postulín úr þríbökuðu Laufen. Hiti er í öllum gólfum. Innréttingar frá HTH. Free@home stýrikerfi ffyrir ljós og myndavéladyrasíma. Snertilaust lyklaaðgengi í allar íbúð, sameignarrými og útihurðir. Sjónsteypa á öðrum langvegg íbúðarinnar.Forstofuhol/gangur sem liggur frá norður til suðurs og tengir saman alrými, stofu, borðstofu, eldhús og svefnherbergi. Gott skápapláss. Alrými:Eldhús með góðu skápaplássi, eyju og vinnuaðstöðu. Spanhelluborð, innfelldur ofn, innbyggð uppþvottavél og ísskápur. Stofur, rúmgott rými með stórbrotnu útsýni í norður. Svefnherbergi með gengt út á rúmgóðar suðursvalir. Inn af svefnherberginu er fataherbergi og baðherbergi. Baðherbergi, flísalagt með hvítri innréttingu og handlaug yfir innréttingu, sturtu og innfelldum blöndunartækjum. Hvítar flísar á veggjum.Gestasalerni, með salerni, hvítri innréttingu og handlaug yfir salerni.Þvottaús með tengi fyrir þvottavél og þurrkara, skáp og vinnuborði með handlaug. Sérgeymsla er í kjallara. Einstaklega falleg eign á þessum frábæra stað með allri þeirri þjónustu og afþreyingu sem miðborgin hefur upp á að bjóða, í göngufjarlægð. Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máliErtu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmatErtu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkarFylgdu okkur á InstagramSkoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segjaHvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot HúsaskjólsErtu í fasteignahugleiðingum erlendis? Húsaskjól er meðlimur í Leading Real Estate Companies of the WorldHúsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer, sales agreement and other documents relating to the purchase of the property. Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald. Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði