RE/MAX og Guðrún Þórhalla, löggiltur fasteignasali kynna í sölu, glæsilega og rúmgóða 2ja herbergja 83,3 fm á jarðhæð með sér inngangi í góðu fjölbýlishúsi við Tröllakór 14 í Kópavogi. Íbúðin skiptist í forstofu m/forstofuskáp, aðalrými með rúmgóðu eldhúsi og útgengi út á góðar suður svalir, eitt svefnherbegi, baðherberg og sér þvottaherbergi. Eignin er nýlega uppgerð með nýju baðherbergi, eldhúsi, gólfefni og nýlega máluð. Falleg eign sem hægt er að mæla með. Í sameign fylgir aðgengi að hjóla og vagnageymslu. Stutt í leik- og grunnskóla sem og íþróttasvæði HK.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðrún Þórhalla Helgadóttir í síma 820-0490 eða á netfangið gudrun@remax.is.
Frekari upplýsingar um eignina:Forstofa rúmgóð með flísum á gólfi.
Hjónaherbergi með parketi og góðum skápum.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, upphengt salerni, góð innrétting og sturta.
Samliggjandi stofa, borðstofa og eldhús. Stórt og bjart rými með parketi á gólfi. Úr stofu er útgengt út á stórar svalir til suðurs.
Eldhús er með nýlegri og fallegri innrétting, nýtt eldhústæki og blöndunartæki. Gott vinnu og skápapláss.
Ath. hægt væri að stúka af frá stofu - herbergi/skrifstofu sem yrði bjart og með gólfsíðum gluggum - sjá teikningu.Sér geymsla er í sameign.
Mjög vel staðsett eign sem búið er að endurnýja, með sérinngangi og í góðu fjölbýlishúsi.
Upplýsingar um endurbætur á eign:- Settar nýjar terrazzo flísar á baðherbergi, þvottahús og forstofu.
- Endurbætt allar lagnir inn á baðherbergi.
- Ný baðherbergis innrétting, nýr klósettkassi og klósett og walk in shower.
- Nýtt harðparkets planka á gólf og skipt var um allar innihurðir.
- Ný eldhús innrétting, með nýjum eldhústækjum(ofn, helluborð og háfur).
Allar frekari upplýsingar veitir Guðrún Þórhalla, löggiltur fasteignasali í síma 820-0490 eða á netfangið gudrun@remax.is Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.