Mjög snyrtileg 3ja herbergja 89,3 m² íbúð í góðu raðhúsi á einni hæð í Giljahverfi á Akureyri.
*** Eignin getur verið laus til afhendingar fljótlega ***
Eignin skiptist í: Forstofu, þvottahús, geymslu, eldhús, stofu/borðstofu og baðherbergi.
Forstofa er með flísum á gólfi og fatahengi.
Þvottahús og geymsla er innaf forstofu, með flísum á gólfi ljós innrétting opnanlegur gluggi.
Eldhús ljós innrétting með ljósum borðplötum, tengi fyrir uppvþottavél og gluggi við vask. Borðkrókur.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og vegg við baðkar með sturtuaðstöðu. Ljós innrétting, stór gluggi.
Svefnherbergin eru tvö bæði með parketi á gólfi og fataskápum.
Stofa/borðstofa er rúmgóð með parketi á gólfi og þaðan er hurð út á verönd til vesturs.
Annað:
- Mjög skemmtileg eign á góðum stað í Giljahverfi.
- Hús og gluggar málað utan 2024
- Mörg bílastæði
- Timburverönd vestan við hús.