LIND fasteignasala kynnir vel skipulagða 3ja herbergja 83,8 fermetra íbúð á annarri og efstu hæð (þriðju frá bílastæði) ásamt sér stæði í opnu bílskýli við Tröllaborgir 17. Allar nánari upplýsingar veitir Ómar Hvanndal lögmaður og löggiltur fasteignasali í síma 832-3200 eða omar@fastlind.is Nánari lýsing eignar.
Forstofa með fataskáp og flísalögðu gólfi.
Eldhús með parketi á gólfi og hvítri innréttingu. Eldhús, borðstofa og stofa í einu samliggjandi og opnu rými.
Stofa/borðstofa er björt og rúmgóð með parketi á gólfi. Úr stofu er útgengt út á stórar suður svalir.
Hjónaherbergi er sérlega rúmgott með parketi á gólfi og fataskápum. Úr hjónaherbergi er glæsilegt útsýni til sjávar og yfir Esjuna.
Svefnherbergi með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt. Þar er baðkar með sturtuaðstöðu.
Þvottahús er staðsett innan íbúðar. Í þvottahúsi eru flísar á gólfi og hvít innrétting þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara.
Sérgeymsla fylgir eigninni en hún er staðsett á jarðhæð. Af gangi íbúðarinnar er lúga upp í þakrými sem nýtt hefur verið sem geymsluloft.
Eigninni fylgir eitt stæði opnu bílskýli.
Í sameign er hjóla og vagnageymsla.
Allar nánari upplýsingar veitir Ómar Hvanndal lögmaður og löggiltur fasteignasali í síma 832-3200 eða omar@fastlind.is Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá 9 samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan,
Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak og Dorma.