Heimaland fasteignasala kynnir, Tröllakór 8, íbúð 0209. Um er að ræða endaíbúð á annari hæð í fjögurra hæða lyftuhúsi. Íbúðin er skráð 113,3fm en geymsla í sameign er 7,9fm. þar af. Bílastæði í bílageymslu merkt B15 fylgir eigninni.Íbúðin telur forstofu, 3 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og alrými sem samanstendur af eldhús, borðstofu og stofu, geymslu og bílastæði í bílakjallara.
Nánari lýsing eignar. Gengið er inn í flísalagða forstofu með fataskáp.
Eldhús, borðstofa og stofa er í opnu rúmgóðu rými. Parket er á gólfum. Í eldhúsi er rúmgóð, upprunaleg eldhúsinnrétting. Útgengt er á svalir úr borðstofu.
Svefnherbergin eru þrjú, öll rúmgóð með parketi á gólfum og rúmgóðum fataskápum.
Baðherbergi er rúmgott, flísar á gólfi og veggjum, baðkar, sturtuklefi, upphengt salerni og innrétting.
Þvottahús er með flísum á gólfi og innréttingu þar sem þvottavél og þurrkara er haganlega komið fyrir.
Hér er um að ræða vel staðsetta eign þar sem leikskóli, grunnskóli og íþróttasvæði eru í göngufæri.
Allar nánari upplýsingar veita:
Snorri Sigurðarson, löggiltur fasteigna og skipasali, sími 897-7027, snorri@heimaland.is
Elísa Dagmar Björgvinsdóttir, aðstoðarmaður fasteignasala, í löggildingarnámi, sími 868-7938, elisa@heimaland.is Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald kaupanda er skv. verðskrá.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Heimaland hvetur því viðskiptavini sína og væntanlega kaupendur af fasteignum að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir tilboðsgerð eða eftir atvikum fyrir kaupsamningsgerð. Ef þurfa þykir ættu væntanlegir kaupendur að leita til þar til bærra sérfræðinga um aðstoð við slíka skoðun.
www.heimaland.is, Austurvegur 6, 800 Selfoss, Fasteignasalan Heimaland ehf.