RE/MAX ásamt Þórdísi Björk Davíðsdóttur löggiltum fasteignasala kynna: Einstaklega falleg og rúmgóð 4ra - 5 herberbergja útsýnis íbúð í grónu hverfi í Kópavogi. Eldhús er nýlega endurnýjað ásamt gólfefnum á stofu og eldhúsi (2022). Baðherbergi endurnýjað 2019.Ytra byrði hefur fengið gott viðhald o... Sýna meira
RE/MAX ásamt Þórdísi Björk Davíðsdóttur löggiltum fasteignasala kynna: Einstaklega falleg og rúmgóð 4ra - 5 herberbergja útsýnis íbúð í grónu hverfi í Kópavogi. Eldhús er nýlega endurnýjað ásamt gólfefnum á stofu og eldhúsi (2022). Baðherbergi endurnýjað 2019.Ytra byrði hefur fengið gott viðhald og var lyftan í húsinu nýlega endurnýjuð.Fyrirhugað fasteignamat fyrir árið 2024 er kr.66.350.000.-Allar nánari upplýsingar veita: Þórdís Davíðs, lgf., í síma 862-1914 eða á , SMELLTU HÉR og þú færð SÖLUYFIRLIT SAMSTUNDIS KÍKTU Í HEIMSÓKN - SMELTU HÉR – skoða eignin í - 3D3D er = OPIÐ HÚS ÞEGAR ÞÉR HENTAREkki þarf sérstakt forrit til að skoða eignina í 3D.Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Þórdís Björk löggiltur fasteigna- og skipasali s: 862-1914 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfangið alla dagaSamkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands er birt flatarmál eignarinnar 104,2 fm auk geymslu í kjallara sem er ekki í heildarfjölda fermetra.Innan íbúðar eru forstofa, 3-4 herbergi, baðherbergi, þvottahús, eldhús og stofa. Nánari lýsing eignar:Forstofa með harðparketi á gólfi og góðum fataskápum.Herbergi I og II er núna Hjónaherbergi áður voru tvö barnaherbergi. Parket á gólfi og góðir fataskápar frístandandi. (Auðvelt er að breyta aftur í tvö herbergi) Herbergi III er þar sem áður var hjónaherbergi og er mjög rúmgott barnaherbergi með parketi á gólfi. Herbergi IV er núna þar sem hluti af eldhúsi var áður og er notað sem gestaherbergi og skrifstofa.Þvottahús með nýlegri hvítri innréttingu frá GKS (2022) er inn af herbergi IV og er útgengt á austur svalir.Baðherbergi var endurnýjað af fyrri eigendum (2019) og er baðkar með sturtuaðstöðu, upphengdu salerni, góðri innréttingu og handklæðaofni.Eldhús var allt endurnýjað 2022 og er innréttingin frá GKS, flísar á milli skápa, span helluborð, veggfastur bakaraofn frá Bosch, innbyggð uppþvottavél (Samsung) og ísskápur (Whirlpool), led lýsing í borðplötu og útdraganlegar skúffur í eyju.Stofa, borðstofa og eldhús eru björtu opnu rými með útgengi á vestur svalir með útsýni yfir Faxaflóann og sést vel í Snæfellsjökul og fallegt sólsetur á góðum degi.Nýlegt harðparket er á forstofu, gangi, stofu, borðstofu og eldhúsi.Geymsla íbúðar er í sameign sbr. eignaskiptasamning en er ekki skráð í þjóðskrá.Sameign er snyrtilega með hjóla og vagnageymslu ásamt geymslugangi. Þvottahús og þurrkherbergi er einnig í sameign.Grunnskóli, leikskóli, verslun í næsta nágrenni. Góð eign sem býður upp á möguleika með að bæta við svefnherbergi.Athuga þarf að geymsla er á réttum stað miða við teikningu. Ástandsskýrsla var gerð 2019 um fjölbýlið. Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. - Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.- Ertu í söluhugleyðingum? Smelltu HÉR til að fá frítt verðmat. Smelltu HÉR til að skoða heimasíðu mína og umsagnir viðskiptavina minna.Heimasíða RE/MAXGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: · Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða) og 1,6% (ef lögaðilar)af heildarfasteignamati.· Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.· Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.· Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk