LANDMARK fasteignamiðlun og Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu vel skipulagða, bjarta og fallega 3ja herbergja útsýnisíbúð á efstu hæð með sérinngang og stæði í bílageymslu. Eigninni fylgir hlutdeild í sameign, sameiginlegri hjóla- og v... Sýna meira
LANDMARK fasteignamiðlun og Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu vel skipulagða, bjarta og fallega 3ja herbergja útsýnisíbúð á efstu hæð með sérinngang og stæði í bílageymslu. Eigninni fylgir hlutdeild í sameign, sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu og sér geymsla í kjallara. Eignin er laus fljótlega eftir kaupsamning. Eignin er merkt 310 og gengið inn um stigahús A, birt stærð séreignar er 86,1 fm, þar af er geymsla í kjallara 11,9 fm.Allar frekari upplýsingar veitir Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 663 2300 eða .Nánari lýsing.Forstofa með fataskáp, flísar á gólfi. Eldhús í opnu rými með vandaðri innréttingu frá Axis og vönduðum tækjum, innbyggð uppþvottavél sem fylgir og parket á gólfi.Stofa og borðstofa í opnu rými, parketi á gólfi og útgengt á suðursvalir með fallegu úrsýni.Hjónaherbergi með góðum fataskáp, parketi á gólfi.Barnaherbergi með fataskáp, parketi á gólfi.Baðherbergi, flísalagt með vandaðri Axis innréttingu, upphengdu salerni og sturtu.Þvottahús flísalagt, innaf baðherbergi með nýlegri innréttingu og hillum. Geymsla er í sameign, málað gólf.Stæði í bílageymslu með hleðslustöð, merkt 01B19.Húsgjöld íbúðar eru 19.432 kr á mánuði en þá er allur almennur rekstur innifalinn, allur hiti og rafmagn í sameign, þrif á sorpgeymslu, garðumhirða og snjómokstur sem og einnig húseigendatrygging og framkvæmdasjóður. Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla, Salalaug, heilsugæslu, verslun Nettó og golfvöll Kópavogs og Garðabæjar. Allar frekari upplýsingar veitir Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 663 2300 eða . Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.4. Umsýslugjald kaupanda kr. 74.900. 5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunarFáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA