Borg fasteignasala kynnir rúmgóða og vel skipulagða 77.2 fm 2-3ja herbergja íbúð á efstu hæð í lyftuhúsi á fjölskylduvænum stað í Grafarholti. Stæði í bílskýli fylgir eignnni. Húsið allt er klætt að utan og því frekar viðhaldslítið. Gengið er inní íbúð af opnum svalagangi.Íbúð staðsett í rólegu og g... Sýna meira
Borg fasteignasala kynnir rúmgóða og vel skipulagða 77.2 fm 2-3ja herbergja íbúð á efstu hæð í lyftuhúsi á fjölskylduvænum stað í Grafarholti. Stæði í bílskýli fylgir eignnni. Húsið allt er klætt að utan og því frekar viðhaldslítið. Gengið er inní íbúð af opnum svalagangi.Íbúð staðsett í rólegu og góðu hverfi þar sem að stutt er í leikskóla, skóla, íþróttar og útivistarsvæði. Stutt á golfvöllinn og í fallegar gönguleiðir í náttúrunni.Eignin skiptist í: Forstofu, svefnherbergi, lítið svefnherbergi (var áður þvottaherbergi), baðherbergi, stofu/borðstofu, eldhús, sérgeymslu og stæði í lokuðu bílastæðahúsi.Nánari lýsing:Gengið er í íbúðina af opnum svalagangi inn í forstofu með góðum fataskápum.Úr forstofunni er gengið inn í önnur rými íbúðarinnar.Stofa/borðstofa er opið og bjart rými með góðum gluggum til suð-vesturs, útgengt á suð-vestur svalir úr stofu, arinn er í stofu.Eldhúsið er með snyrtilegri hvítri innréttingu, flísar á vegg milli neðri og efri skápa, tengi fyrir uppþvottavél, borðkrókur.Hjónaherbergið er rúmgott með góðum fataskápum. Minna herbergið, sem áður var þvottahús, er með lausum fataskáp.Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, með innréttingu undir vask, baðkar með sturtuhengi, gert er ráð fyrir sturtuklefa í horni en búið er að setja þar upp þvottavél og þurrkara.Sérgeymsla í kjallara. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í kjallara.Sérbílastæði í lokuðu bílastæðahúsi.Gólfefni: Plastparket og flísar á gólfum eignar.Nánari upplýsingar veita:Úlfar Þór Davíðsson, í síma 788-9030, tölvupóstur Börkur Hrafnsson , í síma 892-4944, tölvupóstur .Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900. 5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.