Fasteignasalan Garður Baldur fasteignasali – Sími 450-0000 kynnir: Glæsileg, nýlega endurnýjuð 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með skjólgóðum sérafnotareit og stæði með hleðslustöð í bílakjallara . Eignin er í vinsælu og fjölskylduvænu hverfi, þar sem stutt er í fallega náttúru og grunn- og leikskóla. ... Sýna meira
Fasteignasalan Garður Baldur fasteignasali – Sími 450-0000 kynnir: Glæsileg, nýlega endurnýjuð 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með skjólgóðum sérafnotareit og stæði með hleðslustöð í bílakjallara . Eignin er í vinsælu og fjölskylduvænu hverfi, þar sem stutt er í fallega náttúru og grunn- og leikskóla. Íbúðin hefur verið mikið endurnýjuð, þar á meðal eldhús, gólfefni, hurðir og baðherbergi að hluta.Smelltu hér til að sækja kynningarbækling með öllum helstu upplýsingum. Skipting eignar:Forstofa, þvottahús, hol, tvö svefnherbergi, baðherbergi, stofa og eldhús í opnu rými. Útgengi úr stofu út á skjólgóðan sérafnotareit með fallegu útsýni.Nánari lýsing:Forstofa: Flísalögð með fataskáp.Þvottahús: Inn af forstofu, með glugga og flísum á gólfi. Nett innrétting fyrir þvottavél og þurrkara. Skolvaskur og hillur.Baðherbergi: Nýr vaskur og vaskaskápur með skúffum. Walk-in sturta, baðkar, vegghengt klósett og handklæðaofn. Nýtt sturtutæki og blöndunartæki frá Grohe. Flísalagt í hólf og gólf.Hjónaherbergi: Rúmgott með stórum og vönduðum fataskáp frá Kvik innréttingum. Fallegt parket á gólfi. Þegar herbergi var stækkað var hljóðeinangrun frá stofu bætt sérstaklega.Barnaherbergi: Parketlagt gólf og nýlegur skápur.Stofa: Útgengt á skjólgóðan og sólríkan sérafnotareit. Björt og opin stofa með fallegri klæðningu frá Egill Árnason á sjónvarpsvegg. Raflagnir að sjónvarpsvegg hafa einnig verið endurnýjaðar. Veggur að stofu hefur verið styrktur til að bera stærri sjónvörp. Parket á gólfi.Eldhús: Danskt eldhús frá Kvik, nýlega endurnýjað árið 2020. Eldhúsið er með vandaðri innréttingu, útdraganlegum skúffum í neðri skápum, háum búrskáp, og vínkæli. Innbyggður Liebherr ísskápur og frystir með klakavél, auk Grohe blöndunartækja, gerir þetta eldhús sérstaklega aðlaðandi. Eldhúsið er í opnu rými við stofuna með rými fyrir borðkrók.Sérafnotareitur:Skjólgóður og sólríkur pallur / afnotareitur, fullkominn fyrir grill á góðum sumar- eða vetrardegi með fallegu útsýni til náttúru. Nóg pláss fyrir útihúsgögn.Fjölskylduvænt umhverfi: Eignin er staðsett í rólegu og vinsælu hverfi, stutt frá náttúruperlum, leikskólum, grunnskólum, gönguleiðum. Leiksvæði og útivistarsvæði eru í næsta nágrenni.Nánari upplýsingar veitir:Baldur Jezorski – löggiltur fasteignasali / Sími 450-0000Um skoðunarskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður