Esja Fasteignasala og Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignasali kynna í einkasölu bjarta og mikið endurnýjaða 6 herbergja íbúð á 3. og 4. hæð (efstu hæð) í fallegu vel staðsettu fjölbýli sem stendur hátt og hefur mikið útsýni í Hvömmunum í Hafnarfirði. Rúmgóður bílskúr fylgir eigninni. Húsið hefur fengið gott viðhald, m.a. múrviðgert og málað og skipt hefur verið um flest gler og töluvert af gluggum og báðar svalahurðir og svalagólf á neðri hæð epoxy meðhöndlað.Nánari lýsing; Um er að ræða 173,4 fm. íbúð á tveimur hæðum auk bílskúrs sem er 36 fm. eða 209,4 fm. alls skv. Fasteignaskrá HMS:
Komið er inn í afar snyrtilega og nýlega málaða sameign. Húsið er skemmtilega hannað þannig að hæðirnar skarast og tryggir það að engar tvær íbúðir liggi saman. Lýsing íbúðar;
Neðri hæðin er nánast algjörlega endurnýjuð með gólfefnum, innréttingum, skápum, og hurðum.
Þar er rúmgott hjónaherbergi með nýlegum og veglegum fataskápum.
Stórar stofur með gluggum í suður og svölum. Inn af stofunni er nú innréttuð setustofa með innfelldum hilluskáp, þarna er gert ráð fyrir fimmta herberginu sem auðvelt er að útbúa með léttum vegg.
Eldhúsið er glæsilegt, nýleg innrétting þar sem gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp, innbyggðum ofni og góðu hirslu og bekkplássi, eyja með span helluborði með innbyggðum háf skiptir rýminu aðeins upp en góður borðkrókur rúmar vel borð fyrir 6 manns. Frá eldhúsinu er frábært útsýni yfir Hafnarfjörðinn og víðar.
Baðherbergi er rúmgott, nýlega endurnýjað með stóru (tvöföldu) baðkari, upphengdu salerni, handklæðaofni, 2 vöskum og innréttingu með góðu hirsluplássi. Þar er opnanlegur gluggi. Þvottahús, pláss fyrir þvottavél og þurrkara, innrétting og vaskur
Veglegur stigi liggur milli hæðanna.
Efri hæðin er fjölskylduvæn, þar er rúmgott sjónvarpshol fyrir miðju rýminu. Herbergin eru 3, öll aðeins undir súð sem gerir þau stærri að gólffleti og bætir nýtanlegt pláss. Aukin lofthæð er yfir hluta efri hæðarinnar.
1. Herbergi er rúmgott með góðum fataskápum.
2. Herbergi er einnig rúmgott en það var hugsað sem hjónaherbergi, góðir skápar, þaðan er gengið út á stórar suð-austur svalir sem eru hellulagðar. Þetta herbergi er í dag notað sem líkamsræktaraðstaða og vinnuaðstaða.
3. Herbergi er nú notað sem heima skrifstofa, útsýni til norð-vesturs yfir Hafnarfjörðinn.
Baðherbergi er flísalagt með innréttingu, upphengdu salerni og nýlegum sturtuklefa og opnanlegum glugga.
Gólfefni; Harðparket er á gólfum neðri hæðar fyrir utan þvottahús og baðherbergi sem eru flísalögð. Einnig er parket á efri hæðinni, baðherbergi er flísalagt.
Sameign er afar snyrtileg, nýlega máluð, dökkgrátt teppi á gólfum. Í sameign á jarðhæðinni er sérgeymsla íbúðarinnar, 8,5 fm. auk þess sem þar er sameiginleg vagna- og hjólageymsla.
Eigninni fylgir vel búinn
bílskúr, 36 fm., þar er heitt og kalt vatn og rafmagn, vaskur, ofn, vinnuaðstaða innst í bílskúrnum og geymsluloft yfir hluta hans.
Góð aðkoma er að húsinu, bílastæði beint fyrir framan bílskúrinn þar sem auðvelt er að koma fyrir rafhleðslustöð, þá er töluvert af sameiginlegum stæðum við og nálægt húsinu og þar er hleðslustöð fyrir tvo bíla sem húsfélagið lét setja upp.
Þetta er einstaklega vel staðsett eign þar sem stutt er í allt menntastig frá leikskóla upp í menntaskóla, íþróttasvæði Hauka og sundlaugar, þá er miðbærinn í göngufjarlægð. Einnig er stutt í náttúru t.d. Ástjórn og Ásfjall.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Þóra Birgisdóttir s. 777-2882 eða thora@esjafasteignasala.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Esja fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.