Fasteignasalan TORG kynnir: Bókaðu skoðun. Seljendur skoða skipti á ódýrari eign á höfðuborgarsvæðinu og Reykjanesbæ.Mjög góð, sólrík og björt 3ja herb endaíbúð með miklu útsýni og sérinngangi af gangsvölum, íbúðin er 91,0 fm og skiptist í stofu, 2 rúmgóð herbergi, eldhús, baðherbergi með þvottaaðst... Sýna meira
Fasteignasalan TORG kynnir: Bókaðu skoðun. Seljendur skoða skipti á ódýrari eign á höfðuborgarsvæðinu og Reykjanesbæ.Mjög góð, sólrík og björt 3ja herb endaíbúð með miklu útsýni og sérinngangi af gangsvölum, íbúðin er 91,0 fm og skiptist í stofu, 2 rúmgóð herbergi, eldhús, baðherbergi með þvottaaðstöðu, sér geymsla á hæðinni við hlið íbúðar. Stutt er í alla verslun og þjónustu, heilsugæslustöð, bókasafn, sundlaug, íþróttaaðstöðu, leikskóla og barna- og framhaldsskóla. Allar nánari upplýsingar veitir Þóra Þrastardóttir Löggiltur fasteignasali í síma : 822-22225 eða á NÁNARI LÝSING.Forstofa með fataskáp og flísum á gólfi. Hol með plastparketi á gólfi.Eldhús er rúmgott, 12 fm., með hvítri innréttingu og góðum borðkrók, uppþvottavél fylgir ef óskað er.Stofa og borðstofa er björt og rúmgóð, ca. 25 fm. með plastparketi á gólfi, útgengi er á stórar skjólgóðar 11 fm. suður svalir með miklu útsýni til austurs yfir Heiðmörk, Elliðavatn, Bláfjöll og Vatnsendahæð.Baðherbergi, er 6 fm., flísalagt í hólf og gólf, hvít innrétting, baðkar með sturtuaðstöðu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara, gluggi er á baðherberginu. Auka innbyggður fataskápur er á herbergisgangi.Hjónaherbergi er rúmgott, 13 fm., með stórum fataskápum og plastparketi á gólfi. Barnaherbergi, með fataskáp og plastparketi á gólfi, um 8 fm.Nýir ofnar og Danfosskranar eru í íbúðinni.Geymsla er á hæðinni við hlið íbúðar, rúmgóð með hillum. Sameiginlegt geymsluherbergi er í sameign á jarðhæð, þar sem hver er með sína hillu og þurrkherbergi þar sem eru tæki til bílaþvottar.Sameiginleg vagna- og hjólageymsla á jarðhæð.Húsið sem hefur fengið gott viðhald var sprunguviðgert og málað 2020, nýir gluggar voru settir í stigahús og nýtt þak á stigahúsið. Gaflar eru klæddir.Lóð er snyrtileg og gróin, góð bílastæði eru við húsið og samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu fylgir bílskúrsréttur íbúðinni .Mjög góð eign þar sem stutt er í leikskóla, skóla og aðra þjónustu í hverfinu auk fallegra gönguleiða um Elliðaárdal og nágrenni.Allar nánari upplýsingar veitir Þóra Þrastardóttir Löggiltur fasteignasali í síma : 822-2225 eða á Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af fasteignamati (eða 0,4% við fyrstu-kaup kaupanda) eða 1.6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingagjald af hverju skjali kr. 2.500,-3. Lántökugjald lánastofnunar - mismunandi eftir lánastofnunum.4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 74.900,- með vsk.