Lýsing eignar:Domusnova og Ingunn Björg kynna glæsilega, afar rúmgóða 3ja herbergja íbúð með stæði í bílageymslu á annari hæð í fallegu lyftuhúsi fyrir 60 ára og eldri í Sjálandi í Garðabæ.Skipulag eignarinnar er á eftirfarandi hátt: Eldhús, borðstofa og stofa eru í opnu samliggjandi rými, útgengt e... Sýna meira
Lýsing eignar:Domusnova og Ingunn Björg kynna glæsilega, afar rúmgóða 3ja herbergja íbúð með stæði í bílageymslu á annari hæð í fallegu lyftuhúsi fyrir 60 ára og eldri í Sjálandi í Garðabæ.Skipulag eignarinnar er á eftirfarandi hátt: Eldhús, borðstofa og stofa eru í opnu samliggjandi rými, útgengt er úr stofu á suðvestur svalir með svalalokun. Tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymsla innan íbúðar, einnig er geymsla í sameign. Bílastæði í lokuðum bílakjallara. Í húsinu er lyfta. Innangengt er úr stigagangi á jarðhæð í félagsstarf fyrir eldri borgara og á kaffihús í Jónshúsi, þar sem einnig er í boði að fá heitan mat í hádeginu. Samkomusalur í eigu húsfélagsins er í húsinu sem eigendur geta nýtt. Einnig er í eigu húsfélags íbúð þar sem er starfandi húsvörður. Íbúðir í húsinu eru hannaðar fyrir þarfir eldri borgara. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er eignin 111,6 fm þar af er 4,6 fm geymsla í sameign. Falleg eign sem vert er að skoða.Nánari lýsing:Forstofa: Er með tvöföldum góðum fataskáp og parketi á gólfi.Eldhús: Er vel útbúið með fallegri innréttingu með góðu skápaplássi. Eyja með helluborði og háf, ofn í vinnuhæð. Stofa/borðstofa: Eru samliggjandi í björtu og opnu rými við eldhús, stórir gluggar á tvo vegu, parket á gólfi. Útgengt er á rúmgóðar suðvestur svalir með svalalokun.Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart, fjórfaldur fataskápur, parket á gólfi. Svefnherbergi 2: Rúmgott, tvöfaldur fataskápur, parket á gólfi.Baðherbergi: Rúmgott, flísalagt gólf og veggir að hluta. Rúmgóð og falleg innrétting. Stór sturta með glerskilrúmi, handklæðaofn, upphengt salerni. Hol: Rúmgott hol, parket á gólfi. Svalir: Góðar svalir með svalalokun sem snúa í suðvestur. Þvottahús: Fínt þvottahús inn af eldhúsi. Innrétting með vaski og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Geymsla: Fín geymsla/fataherbergi er innan íbúðar með hillum og skápum. Auk þess er 4,8 fm geymsla í kjallara. Stæði í lokuðum bílakjallara, merkt Y2. Góð aðstaða er til staðar til að þvo bíla. Búið er að gera ráð fyrir hleðslustöð. Nánari upplýsingar veita:Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s.856 3566 / Skrifstofa / s.527-1717 / Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykill er til skýringar á þeirri skráningu: Nýtt - Eignin er nýbygging. Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður. Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti. Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti. Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.