Gimli fasteignasala kynnir: Björt og falleg 95,8 fm íbúð á 3. hæð, auk 5,4 fm geymslu í kjallara, samtals 101,2 fm. Geymslan er ekki inn í birtri fermetratölu hjá Þjóðskrá. Húseignin hefur fengið mikið viðhald á síðustu árum og er t.d. búið að steina húsið að utan og endurnýja þakið. Íbúðin er með ... Sýna meira
Gimli fasteignasala kynnir: Björt og falleg 95,8 fm íbúð á 3. hæð, auk 5,4 fm geymslu í kjallara, samtals 101,2 fm. Geymslan er ekki inn í birtri fermetratölu hjá Þjóðskrá. Húseignin hefur fengið mikið viðhald á síðustu árum og er t.d. búið að steina húsið að utan og endurnýja þakið. Íbúðin er með tveimur svefnherbergjum en var upphaflega teiknuð með þremur svefnherbergjum: Stofan var stækkuð með því að fækka þeim í tvö en auðvelt er að koma íbúðinni í fyrra horf. Tvennar svalir, í norður og suður. Húsfélagið í stigaganginum hefur leigutekjur af herbergjum í kjallara (1,4m á ári).Nánari upplýsingar veitir Kristján Gíslason Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 691-4252, eða sendu fyrirspurn með tölvupósti til NÁNARI LÝSING:Stofa; Mjög rúmgóð með stórum gluggum og útgengi á suður svalir íbúðarinnar. Eldhús; Er við hlið stofu, með viðarinnréttingu, stórum glugga og tengi fyrir uppþvottavél.Hjónaherbergi; Með stórum fataskáp, parket á gólfi og útgengi á norður svalir íbúðarinnar.Barnaherbergi; Fataskápur, parket á gólfi og stór gluggi.Baðherbergi; Er endurnýjað, nuddbaðkar með sturtu, vegghengt salerni, þvottavélatengi, innrétting og opnanlegur gluggi.Svalir; Tvennar svalir eru á íbúðinni. Aðrar svalirnar snúa í suður, útgengt úr stofu og hinar snúa í norður, útgengt úr hjónaherbergi.Geymslur; Innan íbúðar er lítil geymsla við hlið eldhúss. Þá er í kjallara 5,4 fm geymsla (merkt 00-06) sem ekki er inní fermetratölu íbúðar.Hjóla- og vagnageymsla; Í kjallara eru sameiginlegt þvottahús og þurkherbergi, sem í dag eru notuð sem hjóla- og vagnageymsla.Útleigueiningar í sameign; Í kjallara eru tvö útleigurými og renna leigutekjur í hússjóð stigagangsins.Að sögn seljanda hefur húsið verið mikið endurnýjað á síðustu árum og var m.a. steinað að utan, skipt um þak, rennur og niðurföll, skólplagnir fóðraðar, nýr myndavéla-dyrasími, nýjar eldvarnarhurðir á íbúðum og nýlegt gler í stigagangi og stofuglugga.Íbúðin er í útleigu og kaupandi yfirtekur leigusamning.Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.500,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.