Valhöll kynnir: Fallega og sjarmerandi 3ja - 4ra herbergja íbúð á tveimur hæðum í litlu fjölbýli við Sólvallagötu í Reykjavík. Eignin er skráð 81,1 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands.
Allar nánari upplýsingar veitir Óskar H. Bjarnesen í síma 6911931 eða oskar@valholl.isEignin skiptist í neðri hæð 38 fm., efri hæð 37,1 fm og geymslu á jarðhæð 6 fm. alls 81,1 fm.Nánari lýsing.Eignin var
parketlögð árið 2023 að frátöldu baðherberginu sem er flísalagt og var þá á sama tíma skipt um miðstöðvar ofna neðri hæðar.
Gengið er inn í
forstofu með forstofuskáp.
Inn af forstofu er lítið herbergi (6 fm).
Úr forstofu er komið inn í
opið stofu/borðstofurými með gluggum í suður og viðarpanel á veggjum.
Inn af stofu er
eldhús með rúmgóðri viðarinnréttingu, gashelluborði og ofni í vinnuhæð.
Úr stofu er gengið upp stiga upp á efri hæð.
Á efri hæð er stórt og
bjart opið rými. Á teikningu er umrætt rými
svefnherbergi (15,3 fm).
Rúmgott
svefnherbergi (9,9 fm) er einnig á efri hæð með góðu skápaplássi og parketi á gólfi.
Á efri hæð er
baðherbergi með baðkari með sturtuaðstöðu.
Á jarðhæð er
sér geymsla og
sameiginlegt þvottahús sem gengið er inn í úr undirgangi hússins.
Aðeins þrjár íbúðir eru í húsinu og er sameiginlegum inngangi þessarar eignar aðeins deilt með einni annarri íbúð
Samkæmt upprunalegri teikningu er svefnherbergi teiknað í stað stofu á efri hæð og því möguleiki á því að fjölga herbergjum í samræmi við fyrra skipulag.
Nánari upplýsingar veitir Óskar H. Bjarnasen löggiltur fasteignasali / lögfræðingur í síma 691-1931 eða oskar@valholl.isUm skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 fyrir hvert skjal.
3. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.