*** EIGNIN ER SELD OG ER Í FJÁRMÖGNUN *** LANDMARK fasteignamiðlun og Þórey Ólafsdóttir löggiltur fasteignasali, félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu bjarta og rúmgóða 4 herbergja íbúð á fyrstu hæð (ekki jarðhæð) í mikið endurbættu húsi við Sólvallagötu í Reykjavík. Frábær staðsetni... Sýna meira
*** EIGNIN ER SELD OG ER Í FJÁRMÖGNUN *** LANDMARK fasteignamiðlun og Þórey Ólafsdóttir löggiltur fasteignasali, félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu bjarta og rúmgóða 4 herbergja íbúð á fyrstu hæð (ekki jarðhæð) í mikið endurbættu húsi við Sólvallagötu í Reykjavík. Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla. Eignin skiptist í opið hol, tvær stofur, eldhús, tvö svefnherbergi og baðherbergi en henni fylgir hlutdeild í sameign hússins, sameiginlegu þvottahúsi og sér geymsla í kjallara. Aukin lofthæð með skrautlistum og einkar fallegt samfellt eikarparket. Íbúðin var máluð haustið 2020. Við á LANDMARK fasteignamiðlun fylgjum fyrirmælum sóttvarnarlæknis og biðjum áhugasama kaupendur að mæta með andlitsgrímu og hanska í skoðun til að draga úr smithættu og hægja á útbreiðslu COVID-19. Nánari lýsing: Forstofa / opið hol með fatahengi, gegnheilt eikarparket á gólfi. Eldhús með ljósri innréttingu , gashelluborði og tengi fyrir uppþvottavél, flísar á gólfi. Stofa og borðstofa, bjart og rúmgott rými með gluggum í tvær áttir, gegnheilt eikarparket á gólfi. Hjónaherbergi með innbyggðum fataskáp, gegnheilt eikarparket á gólfi og útgent á svalir og þaðan niður tröppur í garð. Barnaherbergi, gegnheilt eikarparket á gólfi. Baðherbergi, flísalagt með salerni, innréttingu og baðkari með sturtustöng. Geymsla (2,3 fm) í kjallara sem og sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi. Húsgjöld íbúðar eru krónur 3.767,- á mánuði en þá er allur almennur rekstur innifalinn sem og einnig rafmagn í sameign, húseigendatrygging og garðsláttur. Að sögn seljanda var sameign máluð og teppi hreinsað í desember 2020. Húsið múrviðgert og steinað að framan árið 2012 og að aftan 2016. Árið 2017 var þakið yfirfarið og málað og skipt um þakrennur, aftur yfirfarið árið 2020. Árið 2020 voru skólplagnir undir húsi grafnar upp og endurnýjaðar, nýtt dren sett upp við framhlið hússins, rafmagnstafla endurnýjuð og ný rafmagnsheimtaug lögð. Gluggar og gler endurnýjaðir á götuhlið hússins kringum 2007 og gler endurnýjað garðmegin 2017. Allar upplýsingar veitir Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali / B.Sc. í viðskiptafræði í síma 663 2300 eða Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila. 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal. 3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. 4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900. 5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á. Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar Fáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA Fletta í fasteignalista