Domusnova og Ingunn Björg kynna : Fallega og vel skipulagða 107,2 fermetra 3ja herbergja íbúð á fimmtu hæð í lyftuhúsi við Sóltún 9. Suðvestur svalir með svalalokun ásamt stæði í lokaðri bílageymslu á þessum vinsæla stað miðsvæðis í borginni. Skipting eignar: Forstofa, tvö svefnherbergi, stofa/borð... Sýna meira
Domusnova og Ingunn Björg kynna : Fallega og vel skipulagða 107,2 fermetra 3ja herbergja íbúð á fimmtu hæð í lyftuhúsi við Sóltún 9. Suðvestur svalir með svalalokun ásamt stæði í lokaðri bílageymslu á þessum vinsæla stað miðsvæðis í borginni. Skipting eignar: Forstofa, tvö svefnherbergi, stofa/borðstofa, baðherbergi, þvottaherbergi, eldhús, geymsla innan íbúðar og sérgeymsla í kjallara.Nánari lýsing eignar:Forstofa: Parket á gólfi, fataskápur. Stofa / borðsstofa: Rúmgóð og björt, útgengi á suðvestur svalir með svalalokun. Parket á gólfi. Eldhús: Mjög rúmgóð eikarinnrétting með tækjaskáp. Ofn í vinnuhæð, helluborð með útdraganlegri viftu fyrir ofan, innbyggður ísskápur, uppþvottavél. Parket á gólfi. Léttur veggur á milli borðsstofu og eldhúss. Hjónaherbergi: Horngluggi, góðir fataskápar, rúmgott og bjart , parket á gólfi. Herbergi 2: Rúmgott, parket á gólfi, fataskápur. Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Fín innrétting, með neðri skápum, efri skápar með speglahurðum. Hár tvöfaldur skápur. Sturta, upphengt salerni. Þvottahús: Flísalagt gólf vaskur. Innan íbúðar. Geymsla 1: Litil geymsla er innan íbúðar, parket á gófi, lofttúða. Auðvelt að nýta sem skrifstofurými. Geymsla 2: Staðsett í sameign. 5,2 fm. Hjóla og vagnageymsla er staðsett í sameign ásamt sameiginlegu geymslurými. Nánari upplýsingar veita:Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s.856 3566 / Skrifstofa / s.527-1717 / Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu: Nýtt - Eignin er nýbygging. Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður. Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti. Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti. Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.