RE/MAX og Guðrún Þórhalla, löggiltur fasteignasali kynna í sölu, rúmgóða og fallega 92,9 fm þriggja herbergja íbúð á fyrstu hæð með palli með sérafnotarétti. Íbúðin er laus við kaupsamning. Eignin er í vinsælu og grónu hverfi í Reykjavík Sérafnotareitur er út frá stofunni með skjólgirðingu. Frábær s... Sýna meira
RE/MAX og Guðrún Þórhalla, löggiltur fasteignasali kynna í sölu, rúmgóða og fallega 92,9 fm þriggja herbergja íbúð á fyrstu hæð með palli með sérafnotarétti. Íbúðin er laus við kaupsamning. Eignin er í vinsælu og grónu hverfi í Reykjavík Sérafnotareitur er út frá stofunni með skjólgirðingu. Frábær staðsetning þar sem stutt er í Borgartúnið með sínum fjölmörgu veitingastöðum og verslunum og stutt í alla þjónustu, skóla og leikskóla. Laugardalurinn er í göngufæri frá Sóltúni og miðbærinn líka.Eignin er skráð sem hér segir hjá Þjóðskrá, eign merkt 104, birt heildarstærð eignar 92,9 fm, Þar af er íbúðin skráð 86,3 fm og sérgeymsla í kjallara er skráð 6,6 fm. Íbúðinni fylgir önnur(óskráð) geymsla/rými í kjallara.Íbúðin skiptist í anddyri, hol, eldhús og stofu/borðstofu í opnu rými, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús sem er innan íbúðar. Sameiginleg vagna- og hjólageymsla er á jarðhæð.Frekari upplýsingar um eignina veitir Guðrún Þórhalla Helgadóttir, löggiltur fasteignasali í síma 820-0490 eða á netfangið .Smelltu hér og þá færðu söluyfirlit straxSmelltu hér og þá getur þú sé eignina í 3D(ekki er þörf á sérstöku forriti til að skoða)Nánari lýsingAnddyri/hol, komið er inn í rúmgott anddyri með góðum fataskápum.Þvottaherbergi, á vinstri hönd er þvottahús, vinnuborði með skolvask og hillum.Baðherbergi, er með baði/sturtuklefa, klósetti og góðri innréttingu við vaski.Svefnherbergi, með góðu skápaplássi.Hjónaherbergi er með góðum skápum og parketi á gólfi.Borðstofa, stofa og eldhús er í opnu rúmgóðu rými. Úr stofu er gengið út á verönd(sérafnotaréttur).Eldhús er með góðri innréttingu, flísar á milli hluta af neðri og efri skápa.Ísskápur og uppþvottavél fylgja.Geymsla er í kjallara. Hjóla og vagnageymsla er á hæðinni. Gólfefni íbúðar er gegnheilt parket sem lítur vel út, flísar á þvottahúsi og baðherbergi. Flott og vinsæl staðsetning í nálægð við miðbæinn og góðar hjóla og almenningssamgöngur. Allar frekari upplýsingar veitir Guðrún Þórhalla Helgadóttir, lögg. fasteignasali í síma 820-0490 eða á tölvupósti .Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.