Böðvar Sigurbjörnsson og Borg fasteignasala kynna til sölu: Sóleyjarimi 19, íbúð merkt 04-02. Góð og vel skipulögð þriggja herbergja íbúð á 4 hæð í lyftuhúsi fyrir 50 ára og eldri með stæði í lokaðri bílageymslu.*** íbúðin er laus til afhendingar við undirritun kaupsamnings *** Skipulag: anddyri, ga... Sýna meira
Böðvar Sigurbjörnsson og Borg fasteignasala kynna til sölu: Sóleyjarimi 19, íbúð merkt 04-02. Góð og vel skipulögð þriggja herbergja íbúð á 4 hæð í lyftuhúsi fyrir 50 ára og eldri með stæði í lokaðri bílageymslu.*** íbúðin er laus til afhendingar við undirritun kaupsamnings *** Skipulag: anddyri, gangur, eldhús og stofa, yfirbyggðar svalir, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, geymsla. Nánari lýsing: Komið er inn í rúmgott anddyri með flísum á gólfi, þar eru góðir skápar fyrir yfirhafnir. Parket er á gólfum íbúðarinnar að undanskyldum votrýmum sem eru flísalögð. Eldhús og stofa eru í opnu sameiginlegu rými. Vönduð eldhúsinnrétting úr eik með efri og neðri skápum, borðlýsing í efri skápum, keramik helluborð með viftu fyrir ofan, granít steinplata, vaskur felldur inn í plötu, innbyggð uppþvottavél og ofn í vinnuhæð. Frá stofu er gengið út á yfirbyggðar svalir sem snúa til suðurs, mögulegt væri að setja svalalokun. Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni, bæði með parketi á gólfi og fataskápum. Baðherbergið er flísalagt hólf í gólf með hvítum flísum á veggjum og gráum á gólfi. Innrétting úr eik með granít steini og handlaug sem felld er inn í plötuna. Spegill með lýsingu fyrir ofan handlaug, skápar úr eik til hliðar við spegil, sturtuklefi og handklæðaofn á vegg. Þvottahúsið er með flísum á gólfi, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, skolvaskur í borðplötu. Annað: dyrasími með myndavél í íbúð og rafdrifnar hurðaopnanir á úti - og innihurðum í sameign. Merkt stæði í lokaðri upphitaðri bílageymslu. Nýlega er búið að rafbílavæða bílageymslu og einnig hefur hleðslustaur verið komið fyrir á bílastæði hússins. Stutt er í alla helstu þjónustu í Spönginni, félagsstarf og þjónustu fyrir eldriborgara, golfvöll, fallegar gönguleiðir og íþróttamiðstöð. Íbúðir í húsinu eru aðeins ætlaðar 50 ára og eldri. Nánari upplýsingar veitir Böðvar Sigurbjörnsson, lögfræðingur M.L. og lgf., í síma 660-4777 eða Sjá einnig:fastborg.is/Smelltu hér til að fylgjast með mér á FacebookSmelltu hér til að fylgja mér á InstagramÍ lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um skyldu kaupenda til að skoða fasteignir.BORG fasteignasala vill því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna áður en gert er kauptilboð og leita til hæfra sérfræðinga til frekari skoðunar.Gjöld sem kaupandi þarf að greiða fyrir kaupin:Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8 / 0,4% af heildarfasteignamati.2. Þinglýsingargjald kaupsamnings, veðskuldabréfs, hugsanlegt veðleyfi o.fl.3. Lántökugjald lánastofnunar4. Umsýslugjald vegna fasteignasölu samkvæmt kauptilboði