Valhöll kynnir glæsilega þriggja herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi í tveggja hæða fjölbýlishúsi byggðu árið 2015 við Sóleyjarimi 13 í Grafarvogi. Tvö baðherbergi, bæði með sturtuaðstöðu. Rúmgott alrými. Gólfhiti. Sérmerkt bílastæði framan við húsið. Rafhleðslustöðvar fyrir bíla á bílastæði sem íbúar geta nýtt.Eignin er skráð 141,1 fm á stærð skiptist í 119,8 fm íbúð og 7,9 fm geymslu.
Þetta er vönduð og glæsileg eign sem vert er að skoða.Nánari lýsing:Anddyri: með fataskáp og flísum á gólfi.
Baðherbergi 1: innaf forstofu með innréttingu, "walk in" sturtu, handklæðaofni og flísum á gólfi.
Eldhús: í rúmgóðu alrými með hvítsprautulakkaðri innréttingu með skápum upp í loft, stórri eyju með helluborði og háfi þar yfir, góðu skápaplássi, granít í borðplötum og parket á gólfi.
Stofa / borðstofa: í stóru alrými sem rúmar stofu, borðstofu og sjónvarpsrými með parket á gólfi og útgengi á hellulagða verönd fyrir framan hús.
Þvottahús: við hlið eldhúss með skápum, skolvaski og stæði fyrir þvottavél og þurrkara og flísum á gólfi.
Hjónasvíta/fataherbergi/baðherbergi:Hjónaherbergi: með parketi á gólfi. Innangengt í fataherbergi og á baðherbergi (rennihurðir inn í fataherbergi og baðherbergi).
Fataherbergi: með góðum fatahirslur sem ná upp í loft, opnanlegum glugga og parket á gólfi.
Baðherbergi 2: með "walk in" sturtu, handklæðaofni, innréttingu á gólfi.
Svefnherbergi: rúmgott herbergi með fataskáp, parketi á gólfi og útgengi á rúmgóðan sólpall.
Geymsla: 7,9 fm sérgeymsla í kjallara.
Bílastæði: sérmerkt bílastæði fyrir framan hús.
Hjóla- vagnageymsla: sameiginleg í kjallara.
Hússjóður:Þessi íbúð er að greiða 20.000 kr. á mánuði.
Nánari upplýsingar veitir:Snorri Björn Sturluson fasteignasali / lögfræðingur í síma 699-4407 eða í tölvupósti á netfangið snorribs@valholl.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.