Gimli fasteignasala kynnir: Glæsileg og mjög rúmgóð 3ja herbergja íbúð með sérinngangi á 2. hæð (efstu) í nýlegu fjölbýlishúsi við Sóleyjarima 13. Eignin er skráð þannig; íbúð 135,2 fm, geymsla 7,9 fm, samtals 143,1 fm. Íbúðin skiptist í forstofu, stofu/borðstofu, eldhús, 2 herbergi, 2 baðherbergi,... Sýna meira
Gimli fasteignasala kynnir: Glæsileg og mjög rúmgóð 3ja herbergja íbúð með sérinngangi á 2. hæð (efstu) í nýlegu fjölbýlishúsi við Sóleyjarima 13. Eignin er skráð þannig; íbúð 135,2 fm, geymsla 7,9 fm, samtals 143,1 fm. Íbúðin skiptist í forstofu, stofu/borðstofu, eldhús, 2 herbergi, 2 baðherbergi, þvottahús og rými sem stúkað er af úr stofu (gluggi inn á gang). Hiti er í gólfi og góð lofthæð. Eigninni fylgir sérmerkt bílastæði og tvær hleðslustöðvar fyrir raf/hybrid bíla eru á lóðinni fyrir íbúa að Sóleyjarima 13.Nánari upplýsingar veitir Halla Unnur Helgadóttir, löggiltur fasteigna- fyrirtækja og skipasali, í síma 659-4044, milli kl. 9:00 og 17:00 alla virka daga, eða sendu fyrirspurn með tölvupósti til og/eða Elín Rósa Guðlaugsdóttir, löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 773-7126 eða með tölvupósti NÁNARI LÝSING:Forstofa: mjög rúmgóð og með miklu skápaplássi. Flísar á gólfi og rennihurð.Baðherbergi/gestasnyrting: inn úr forstofu. Sturta, innrétting með vaski og flísar á gólfi og veggjum.Stofa/borðstofa: virkilega rúmgóð í opnu rými með eldhúsi. Útgengi á vestur svalir. Eldhús: hvít innrétting og grár steinn á borði. Vegleg eldhúseyja með sætisplássi. Mikið skápapláss. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja.Hjónasvíta: afar rúmgóð með fataherbergi og baðherbergi. Fataherbergi með rennihurð og góðum glugga. Baðherbergi er mjög rúmgott og með sturtu, innréttingu með vask og flísar á gólfi og veggjum.Herbergi/rými stúkað af úr stofu: mjög rúmgott, nýtist vel sem t.d. skrifstofa eða sjónvarpsherbergi. Innfelld lýsing.Herbergi: virkilega rúmgott (15 fm) og með skáp sem nær upp í loft. Útgengi á austur svalir.Þvottahús: er innan íbúðar, virkilega rúmgott. Innrétting með upphækkun fyrir þvottavél og þurrkara, vaskur í borði. Flísar á gólfi.Geymsla: í sameign í kjallara, 7,9 fm, með hillum.Hjóla-og vagnageymsla: í sameign í kjallara.Gólfefni í íbúð er parket, nema annað komi fram. Húsið var byggt árið 2015 og lítur vel út. Lóðin og sameign er snyrtileg. Sérlega glæsileg eign í sérflokki í þessu hverfi. Stutt er í alla helstu þjónustu, Spöngina, skóla, o.fl.Nánari upplýsingar veitir Halla Unnur Helgadóttir, löggiltur fasteigna- fyrirtækja og skipasali, í síma 659-4044, milli kl. 9:00 og 17:00 alla virka daga, eða sendu fyrirspurn með tölvupósti til og/eða Elín Rósa Guðlaugsdóttir, löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 773-7126 eða með tölvupósti Gimli er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð 1982 og fagnar því fljótlega 40 ára starfsafmæli. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki og traust. Gimli, gerir betur...Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.500,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.