RE/MAX kynnir í einkasölu: Glæsileg 236 m² penthouse íbúð við Hlíðarenda með Zen innigarði og bílskúr. Vönduð íbúð með sérsmíðuðum innréttingum, gólfsíðum gluggum, gólfhita og aukinni lofthæð.SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA ALLAR EIGNIRNAR Á HEIMASÍÐUNNI - PENTHOUSEIBUDIR.IS- Bílskúr og stæði í bílageymsl... Sýna meira
RE/MAX kynnir í einkasölu: Glæsileg 236 m² penthouse íbúð við Hlíðarenda með Zen innigarði og bílskúr. Vönduð íbúð með sérsmíðuðum innréttingum, gólfsíðum gluggum, gólfhita og aukinni lofthæð.SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA ALLAR EIGNIRNAR Á HEIMASÍÐUNNI - PENTHOUSEIBUDIR.IS- Bílskúr og stæði í bílageymslu- Hjónaherbergi með fataherbergi og sér baðherbergi- Zen innigarður / þaksvalir (hægt að setja heitan pott)- Vandaðar sérsmíðaðar innréttingar frá HBH Byggir Nánari lýsing:Gengið er inn í anddyri með góðum forstofuskáp. Hjónaherbergissvítan er 31,4 m², samanstendur það af stóru herbergi, fataherbergi og sér baðherbergi. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, með góðri innréttingu og rúmgóðri sturtu.Barnaherbergið er 12,3 m², með fataskáp og stórum glugga. Stofan er opinn inn í eldhúsið með stórum gluggum sem vísa út á svalir. Stofan og eldhúsið er 53,8 m² að stærð.Sjónvarpsherbergið er við stofuna, léttur veggur aðskilur rýmin. Hægt er að loka rýminu alveg til að fá þriðja svefnherbergið. Stærðin er 14,0 m ².Svalirnar snúa í suðaustur og eru 18,1 m².Eldhúsið er með sérsmíðuðum vönduðum innréttingum og eyju sem skilur að eldhús og stofuna. Þaksvalirnar (Zen innigarðurinn) er við eldhúsið og eru þær 20,2 m² að stærð. Séreinkenni íbúðarinnar er að þaksvalirnar eru innan íbúðar. Tengi eru til staðar til að setja upp heitan pott á svölunum.Baðherbergi 2 er 4,3 m² með klósetti, vaskaeiningu og stórri sturtu. Flísalagt í hólf og gólf.Þvottahúsið er innan íbúðar, 4,5 m² að stærð með góðri innréttingu og vinnuvaski. Flísar á gólfi.Bílskúrinn er í bílageymslunni, 33,4 m² að stærð og inn af bílskúrnum er gengið inn í geymsluna sem er 31,9 m². Bílastæði í bílastæðahúsi fylgir.Skilalýsing - Íbúðin skilast með sérsmíðuðum innréttingum í eldhúsi, Kvartsít borðplötu frá Fígaró, Elica háf, Miele ofn og spanhelluborði. Sérsmíðaðar innréttingar inni á baðherbergjum með granít boðrplötu. Fataskápar í herbergjum, forstofu og innrétting í þvottahúsi eru einnig sérsmíði. Innihurðar í stíl, gereftslausar. Íbúðin afhendist án gólfefna en með flísum á votrýmum. Garðurinn er einstaklega fallegur og skjólgóður. Hann er lokaður af með húsunum sem gefur gott skjól og er í hönnun garðsins gert ráð fyrir upplýstu leiksvæði fyrir börn.Húsið er byggt úr steinsteypu, einangrað og klætt að utan með málmklæðningu. Þakið er viðsnúið þak, slétt með þakdúk og einangrað ofan á plötu með þéttri rakaheldri plasteinangrun a.m.k. 250 mm, grasi og hellum á svalagörðum. Gluggar eru álgluggar með tvöföldu einangrunargleri (K-gleri) frá Gluggasmiðjunni. Útveggir eru ýmist múrhúðaðir að innan eða sandspatlaðir og innveggir eru gipsveggir á álgrind.SMELLTU HÉR TIL AÐ SJÁ SKILALÝSINGUBókaðu skoðun / fáðu nánari upplýsingar hjá:Brynjar Ingólfsson MSc/lgf - s. 666 8 999 / Gunnar Sverrir, lgf - s. 862-2001 /