RE/MAX kynnir í einkasölu: Einstök 202,5 m² penthouse íbúð við Hlíðarenda með Zen innigarði og bílskúr. Vönduð íbúð með sérsmíðuðum innréttingum, gólfsíðum gluggum, gólfhita og aukinni lofthæð. SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA ALLAR EIGNIRNAR Á HEIMASÍÐUNNI - PENTHOUSEIBUDIR.IS- Þrjár þaksvalir, þar á meða... Sýna meira
RE/MAX kynnir í einkasölu: Einstök 202,5 m² penthouse íbúð við Hlíðarenda með Zen innigarði og bílskúr. Vönduð íbúð með sérsmíðuðum innréttingum, gólfsíðum gluggum, gólfhita og aukinni lofthæð. SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA ALLAR EIGNIRNAR Á HEIMASÍÐUNNI - PENTHOUSEIBUDIR.IS- Þrjár þaksvalir, þar á meðal Zen innigarður- Bílskúr og tvö stæði í bílageymslu- Stórt hjónaherbergi með fataherbergi, svölum og sér baðherbergi- Vandaðar sérsmíðaðar innréttingar frá HBH Byggir Nánari lýsing:Gengið er inn í rúmgott anddyri með stórum forstofuskáp. Hjónaherbergissvítan er 25,3 m². Samanstendur það af stóru herbergi, fataherbergi og sér baðherbergi. Herbergið er 16,2 m² með útgengt út á svalir. Baðherbergið er 4 m², flísalagt í hólf og gólf með stórri sturtu.Alrýmið er 52,3 m² og samanstendur af stofu, borðstofu og eldhúsi. Eldhúsið er með sérsmíðuðum vönduðum innréttingum og eyju sem hægt er að sitja við. Útgengt er frá eldhúsi á þaksvalir 2, sem eru 17,1 m² að stærð.Stofan er við borðstofu. Þaksvalir 2 og Zen innigaðurinn eru sitthvoru megin við stofuna.Sjónvarpsherbergi / svefnherbergi er við stofuna með glugga inn á Zen innigarðinn og útgengt út á þaksvalir 2.Zen innigarðurinn / þaksvalir 3 eru 29,6 m² að stærð og er séreinkenni eignarinnar. Þær eru hellulagðar og tengi eru til staðar til að setja upp heitan pott.Baðherbergi 2 er 3,5 m² að stærð með klósetti, vaskaeiningu og stórri sturtu. Flísar á gólfi og veggjum. Þvottahúsið er innan íbúðar, 4,3 m² að stærð með góðri innréttingu og vinnuvaski. Flísar á gólfi. Bílskúrinn er í bílageymslunni, hann er 33,4 m² að stærð og inn af bílskúrnum er geymsla 1 sem er 23,7 m². Geymsla 2 er 7,6 m². Tvö bílastæði í bílastæðahúsi fylgja.Skilalýsing - Íbúðin skilast með sérsmíðuðum innréttingum í eldhúsi, Kvartsít borðplötu frá Fígaró, Elica háf, Miele ofn og spanhelluborði. Sérsmíðaðar innréttingar inni á baðherbergjum með granít boðrplötu. Fataskápar í herbergjum, forstofu og innrétting í þvottahúsi eru einnig sérsmíði. Innihurðar í stíl, gereftslausar. Íbúðin afhendist án gólfefna en með flísum á votrýmum. Garðurinn er einstaklega fallegur og skjólgóður. Hann er lokaður af með húsunum sem gefur gott skjól og er í hönnun garðsins gert ráð fyrir upplýstu leiksvæði fyrir börn.Húsið er byggt úr steinsteypu, einangrað og klætt að utan með málmklæðningu. Þakið er viðsnúið þak, slétt með þakdúk og einangrað ofan á plötu með þéttri rakaheldri plasteinangrun a.m.k. 250 mm, grasi og hellum á svalagörðum. Gluggar eru álgluggar með tvöföldu einangrunargleri (K-gleri) frá Gluggasmiðjunni. Útveggir eru ýmist múrhúðaðir að innan eða sandspatlaðir og innveggir eru gipsveggir á álgrind.SMELLTU HÉR TIL AÐ SJÁ SKILALÝSINGUBókaðu skoðun / fáðu nánari upplýsingar hjá:Brynjar Ingólfsson MSc/lgf - s. 666 8 999 / Gunnar Sverrir, lgf - s. 862-2001 /