RE/MAX / Brynjar Ingólfsson kynnir: Fallegt einbýlishús á einni hæð á skjólsælum stað í Grafarvogi. Húsið að utan hefur fengið mjög gott viðhald.- Fasteignamat 2024 - 120.350.000 kr.- Nýuppgert baðherbergi 2023- Tvö svefnherbergi en möguleiki á þremur- Sólstofa út frá stofu er rúmir 12fm með rennihu...
Sýna meira
RE/MAX / Brynjar Ingólfsson kynnir: Fallegt einbýlishús á einni hæð á skjólsælum stað í Grafarvogi. Húsið að utan hefur fengið mjög gott viðhald.- Fasteignamat 2024 - 120.350.000 kr.- Nýuppgert baðherbergi 2023- Tvö svefnherbergi en möguleiki á þremur- Sólstofa út frá stofu er rúmir 12fm með rennihurð út á stóran lokaðan trépall- Hiti í bílaplani- Arinn í stofuSKOÐAÐU EIGNINA Í 3D HÉRNánari lýsing: Forstofa: Komið er inn í forstofu með flísum á gólfi og góðum fataskáp. Frá forstofu er komið inn í hol sem leiðir inn í önnur rými hússins.Baðherbergi: Gert upp 2023. Steypt frístandandi baðkar frá Lusso. Upphengt klósett og stór walk-in sturta með tækjum frá Tengi. Handklæðaofn og gólfhiti. Innrétting og flísar frá Álfaborg. 2 gluggar á baði. Innfeld lýsing í lofti og óbein lýsing í hluta af loftinu.Eldhús: rúmgott með flísum á gólfi. Innréttingin er með góðu skápaplássi, dökkbæsaður viður, gluggi við vask og nýlegur ofn í vinnuhæð og rúmgóður borðkrókur með glugga. Léttur veggur er á milli eldhúss og stofu. Inn af eldhúsi er þvottaherbergi og búr.Þvottahúsið er rúmgott með innréttingu og vaski ásamt góðu geymslurými. Gluggi á þvottahúsi. Alrými: Stórt alrými sem skipt er í borðstofu, stofu með fallegum gluggum og útgengi út í sólstofu og og þaðan er rennihurð úr á stóran lokaðan timbur-sólpall. Opnanlegt hlið er á pallinum út í garðinn. Arinn i alrými. Sjónvarpshol er á milli aðalrýmis og svefnherbergisgangs.Svefnherbergi: Gott hjónaherbergi með skápum og útgengi út á timburpall/garð þaðan. Barnaherbergi með parketi á gólfi og góðum skáp.Bílskúr: Innangengt er úr holi í snyrtilegan bílskúr en þar er tengi fyrir þvottavél fyrir þá sem það hentar. Geymsluloft að hluta. Þriggja fasa rafmagn í bílskúr. Bílaplanið er hellulagt með snjóbræðslu. Einnig er útigeymsla/lítið hús í bakgarði sem notað er sem geymsla fyrir garðáhöld. Aukaherbergi - möguleiki. Hægt væri að opna eldhúsið inn í stofuna og gera stórt herbergi úr þvottahúsinu og hluta af eldhúsi. Veggir þar eru allir léttir. Einnig væri hægt að gera herbergi úr hluta af bílskúrnum.Allar frekari upplýsingar um eignina veitir:Brynjar Ingólfsson MSc, löggiltur fasteignasali í síma 666 8 999 /