Trausti fasteignasala og Garðar B. Sigurjónsson, löggiltur fasteignasali, kynna fallega 4ra herbergja íbúð á fyrstu hæð auk bílastæðis í bílakjallara í nýlegu lyftuhúsi á góðum stað í Úlfarsárdal. *** Bókið skoðun hjá Aðalsteini í síma 767-0777 eða á netfanginu . Við biðjum alla að virða 2ja metr... Sýna meira
Trausti fasteignasala og Garðar B. Sigurjónsson, löggiltur fasteignasali, kynna fallega 4ra herbergja íbúð á fyrstu hæð auk bílastæðis í bílakjallara í nýlegu lyftuhúsi á góðum stað í Úlfarsárdal. *** Bókið skoðun hjá Aðalsteini í síma 767-0777 eða á netfanginu . Við biðjum alla að virða 2ja metra regluna, sýna tillitssemi og að auki mæta með grímu ***Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands 101,5 fm. Geymsla með glugga er innan íbúðar.Nánari lýsing:Gengið inn í parketlagt anddyri með góðum fataskáp.Stofa er rúmgóð og björt með parketi á gólfi og úr henni er útgengt á góðar suðursvalir.Eldhús er í sama rými og stofa, rúmgott með fallegir innréttingu, mikið vinnupláss, tengi fyrir uppþvottavél, gufugleypir, helluborð og ofn frá AEG. Parket á gólfi.Hjónaherbergi er rúmgott með fataskáp, parketi á gólfi og útgengi á lítinn pall.Svefnherbergi II er mjög rúmgott, með parketi á gólfi og góðum fataskáp.Svefnherbergi III er með parketi á gólfi og fataskáp.Baðherbergi með innangengri sturtu, góðri innréttingu, upphengt klósett og flísalagt í hólf og gólf. Mjög góð þvottaaðstaða inná baðherbergi.Geymsla er innan íbúðar, stór með glugga.Sérmerkt bílastæði í bílageymslu.Um er að ræða einkar fallega 4ra herbergja íbúð á þessum vinsæla stað í Úlfársdal. Stutt er í leik- og grunnskóla, íþróttafélag, verslanir og útivistarsvæði. Einstakar náttúruperlur eru í göngufæri, Úlfarsárdalur, Úlfarsfell, Reynisvatn o.fl. Fjölmargir göngu- og hjólastígar bjóða uppá fjölbreytta möguleika til útivistar og tengja saman hverfin í nágrenninu.Frekari upplýsingar veita Garðar B. Sigurjónsson, löggiltur fasteignasali, í síma 898-0255 eða á og Aðalsteinn Jón Bergdal, aðstoðarmaður fasteignasala, í síma 767-0777 eða á netfanginu Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.