LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir rúmgott einbýlishús á tveimur hæðum með fimm rúmgóðum svefnherbergjum og tvöföldum bílskúr. Húsið er skráð 258 m2 þar af er innbyggður 54,3 m2 bílskúr. Skjólsæll bakgarður til suðurs með verönd og heitum potti. Gengið út á svalir til norðurs frá eldhúsi með fallegu útsýni. Alrýmið er bjart og rúmgott. Stór og rúmgóð innkeyrsla með hitalögnum. Um er að ræða fallega eign með stórfenglegu útsýni í botngötu á þessum eftirsótta stað í Garðabæ.Nánari lýsing neðri hæðForstofan er flísalögð og með fataskápum, hiti í gólfi
Hol með flísalögðu gólfi.
Svefnherbergin á neðri hæðinni eru tvö með parketi, annað með stórum fataskáp.
Baðherbergið er með sturtu, innréttingu með efri og neðri skápum, og handklæðaofni. Hiti í gólfi.
Þvottahús með flísalögðu gólfi og innréttingu þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara.
Bílskúr með tveimur innkeyrsluhurðum, heitt og kalt vatn. Geymsla með hillum er inn af bílskúr.
Stórt svefnherbergi úr hluta af bílskúr með parketi á gólfi og fataskáp. Tveir opnanlegir gluggar.
Flísalagður stigi upp á aðra hæð. Útgengt er út á verönd með heitum potti.Efri hæð -Alrými sem er bjart og rúmgott. Eldhús með hvítri InnX innréttingu með olíuborinni viðarborðplötu og gashelluborði. Gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp í innréttingu og uppþvottavél, eldavél á lítilli eyju, flísar á gólfi ,útgengi á svalir er snúa norðurs með stórfenglegu útsýni.
Stofa -borðstofa með gegnheilu parketi á gólfi og fallegum arni.
Hjónaherbergið er með parketi á gólfi og fataskáp á heilum vegg.
Barnaherbergi með parketi á gólfi og fataherbergi með koju fyrir ofan.
Barnaherbergi með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi með stóru baðkari, innréttingu, upphengdu salerni og handklæðaofni. Hiti í gólfi.
Bílaplanið er hellulagt með snjóbræðslu. Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla. Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is