Guðný Ösp, lgf. s., 665-8909 og fasteignasalan TORG kynnir vel skipulagða fjögurra herbergja íbúð við Skólavörðustíg 26Umrædd eign er staðsett á 1. hæð, samkvæmt fasteignayfirliti frá HMS er eignin samtals skráð 96 m2.
Gengið er upp nokkrar tröppur að stigapalli íbúðarinnar. Einungis ein íbúð er á stigapalli í húsinu.
Mögulegt er að hafa leigutekjur af rúmgóðu herbergi sem er með sér inngang af stigapalli. Íbúðin getur verið laus við undirritun kaupsamnings. ***Fasteignamat ársins 2026 er kr. 88.200.000,-***
Nánari lýsing: Forstofa: parket á gólfi.
Eldhús: er nýtt með hvítri fallegri innréttingu, með góðu skápa- og borðplássi.
Nýjar flísar á milli skápa í eldhúsi geta fylgt með. Innst í eldhúsinu er borðkrókur og þaðan er útgengt á rúmgóðar og skjólsælar suðursvalir.
Baðherbergi: flísalagt í hólf og gólf. Innrétting undir handlaug, skápur og spegill með góðri lýsingu, upphengt salerni og sturtuklefi.
Pláss og tengi fyrir þvottavél og þurrkara inn á baðherbergi. Hjónaherbergi I: parket á gólfi og fataskápar, rúmgott herbergi, með tveimur gluggum sem snúa í átt að bakgarði hússins(suður).
Stofa: parket á gólfi, með glugga sem snýr út að Skólavörðustíg, þar sem hægt er að fylgjast með mannlífinu.
Borðstofa: parket á gólfi, borðstofan snýr í suður með útgengi út á rúmgóðar suður svalir.
Möguleiki er að breyta stofu eða borðstofu í svefnherbergi og fá þannig þriðja herbergið.Svefnherbergi II: Mjög rúmgott herbergi með sér snyrtingu með salerni og vaski.
Mögulegt er að stúka herbergið af, sem hefur inngang af stigapalli, en það var áður í útleigu. Aftan við húsið er lokaður, skjólgóður bakgarður.
Íbúðinni getur fylgt nýtt parket(sama og er á eldhúsi og gangi) á stofu og henni fylgja þrír nýir gluggar fyrir eldhús og hjónaherbergi. Íbúðin hefur verið í eigu sömu fjölskyldu frá upphafi. Eignin er á eftirsóttum stað við Skólavörðustíg þar sem er úrval veitingastaða og verslana. Stutt er í alla þjónustu og allt það helsta sem miðborgin hefur upp á að bjóða.
Listi yfir framkvæmdir sem hafa verið framkvæmdar að sögn eiganda:2025 - Ný eldhúsinnrétting og tæki ásamt nýju harðparketi í eldhúsi, svefnherbergi og á gangi.
2017 - Baðherbergi endurnýjað að fullu með nýjum tækjum, innréttingu og flísum.
2010 - Þakjárn og pappi endurnýjað
2010 - Gafl hússins sem liggur að 26A múrviðgerður og málaður. Bakhlið hússins einnig múrviðgerð og máluð.
2002 - Endurnýjaðar frárennslislagnir undir botnplötu. Kalt vatn fyrir hæðir líka endurnýjað fyrir allt húsið undir kjallaraplötu að veggjum.
Nánari upplýsingar veitir: Guðný Ösp, lgf. s. 665-8909 eða gudny@fstorg.is Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign: Stimpilgjald af kaupsamningi: 0.8% af fasteignamati eignar fyrir einstaklinga en 1.6% fyrir lögaðila en 0.4% ef um fyrstu íbúðarkaup er að ræða.
Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali. Umsýslugjald fasteignasölu, samkvæmt gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.