Skólavegur 27, neðri hæð, Vestmannaeyjum Fjögurra herbergja (þrjú svefnherbergi) íbúð á neðri hæð á tvíbýlishúsi við miðbæ Vestmannaeyja. Sérinngangur að norðanverðu. Íbúðin er 66,6 fm auk sameiginlegs þvottarhúss 4,6 fm, samtals 71,1 fm. Íbúðin skiptist svo:
Anddyri með nýjum flísum, lítið skot undir tröppur flísalagt með sturtuhaus, „dýrahreinsun“
Baðherbergi nýlega endurnýjað, flísar í hólf og gólf, baðkar með sturtu, upphengt wc.
Herbergi (1), með nýju parketi, skápur
Eldhús með flísum á gólfi, ágæt innrétting,
borðkrókur/borðstofaHerbergi (2) með flísum
Herbergi (3) með flísum, kojur, góðir skápar
Þvottarhús í sameign, sér inngangur að austanverðu, þar er hitagrind og nýr varmaskiptir fyrir neðri hæð og rafmagnstafla en rafmagn, kalt vatn og hitaveita er aðskilið.
Ágæt lóð í sameign
Eignin hefur verið mikið endurnýjuð að innan af núverandi eiganda, m.a. nýtt baðherbergi, öll gólfefni ný m.a. keramikflísar, gólfhiti að hluta, allt spartslað og málað, innihurðar nýjar ofl.
Hiti í gólfum og ofnar. Gluggar eru nýlegir og járn (alocink) á þaki að sjá gott. Jarðhæð eignar er steypt og hefur sá hluti verið endurnýjaður af eiganda neðri hæðar, settur drendúkur, múr yfirfarinn og einangraður og á bara eftir að múrhúða þann hluta.
Efri hæð og ris er forsköluð að utan og þarfnast múrhúð endurbóta og eigandi efri hæðar er byrjaður á að klæða húsið að utan og mun klæða þann hluta með álklæðningu og mun sú framkvæmd klárast sumar 2026, samkomulag er um að eigandi efri hæðar sér um að klára þann frágang og greiða kostnað við það en eigandi neðri hæðar klára múrhúð á neðri hæð.