158,3 fm einbýlishús á einni hæð með bílskúr við Skógarhlíð 9 í Setberginu, Hafnarfirði. Eignin skiptist þannig að íbúðarhlutinn er 125,4 fm og bílskúrinn 32,9 fm, samtals 158,3 fm skv. HMS.
Nánari lýsing: Forstofa með skápum. Rúmgóð stofa með útg. á lóð. Eldhús með hvítri innréttingu, eldavél með viftu yfir, borðkrókur. Fjögur svefnherbergi eru í húsinu. Baðherbergi með hvítri innréttingu, baðkar með sturtu yfir, handklæðaofn, veggsalerni. Þvottahús með innréttingu og vask, útg. á lóð. Bílskúrinn er sérstæður á lóð, 32,9 fm með hita, rafmagni og vatni. Lóðin er snyrtilega frágengin með grasverönd, hellulögðu bílaplani, sólpöllum og heitum potti.
Frábær staðsetning þar sem stutt er í helstu þjónustu og falleg útivistarsvæði.