Fasteignasalan Hvammur 466 1600 - kaupa@kaupa.is
Skógarhlíð 12 - rúmgóð og vel skipulögð 4ra herbergja neðri hæð með sérinngangi í þríbýli í Skógarhlíð í Hörgársveit - stærð 132,9 m²Eignin skiptist í forstofu, gang, eldhús, stofu, sjónvarpshol, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu.Forstofa er með flísum á gólfi og stórum fataskáp.
Eldhús er með flísum á gólfi og snyrtilegri spónlagðri eikar innrétting með góðu skápa- og bekkjarplássi. Rúmgóður borðkrókur.
Stofa er með ljósu harð parketi á gólfi og hurð til suðurs út á steypta verönd.
Sjónvarpshol er með ljósu harð parketi á gólfi.
Svefnherbergin eru þrjú, öll ágætlega rúmgóð, með ljósu harð parketi á gólfi og spónlögðum eikar fataskápum.
Baðherbergi er með flísum á á gólfi og hluta veggja, spónlagðri eikar innréttingu, upphengdu wc og sturtu.
Þvottahús er með flísum á gólfi og þar er spónlögð eikar innrétting með stálvask.
Geymsla er inn af þvottahúsi. Þar eru flísar á gólfi og hillur á veggjum.
Annað- Hiti er í öllum gólfum.
- Heitur pottur, skel er á lóðinni.
- Sér hitaveita og sér rafmagn.
- Útsog er út af baðherbergi, þvottahúsi og geymslu.
- Ljósleiðari er kominn inn og tengdur.
- Húsið var málað að utan árið 2024
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.