- Eigin er seld með fyrirvara -Gimli fasteignasala kynnir: Einstaklega fallega og bjarta sérhæð í þríbýli við Skipasund 55 í Reykjavík. Um er að ræða 71,2m2 rishæð í þríbýli sem skiptist í hol, eldhús, stofu, 3 svefnherbergi, baðherbergi, stórt háaloft og sameiginlegt þvottahús.- Húsið hefur fengið ... Sýna meira
- Eigin er seld með fyrirvara -Gimli fasteignasala kynnir: Einstaklega fallega og bjarta sérhæð í þríbýli við Skipasund 55 í Reykjavík. Um er að ræða 71,2m2 rishæð í þríbýli sem skiptist í hol, eldhús, stofu, 3 svefnherbergi, baðherbergi, stórt háaloft og sameiginlegt þvottahús.- Húsið hefur fengið gott viðhald.- Nýtt járn á þaki 2020.- Glæsilegt útsýni.- Óskráðir fermetrar.Nánari upplýsingar veitir Jón Steinar Brynjarsson, Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 773-4557, eða á .NÁNARI LÝSING:Hol: Með parketi á gólfum, fataskáp og tengir saman öll rýmin á hæðinni.Eldhús: Með parketi á gólfi, viðarinnréttingu og opið inn í stofuna.Stofan: Björt með parketi á gólfi.Svefnherbergi I: Með parketi á gólfi og fatahengi.Svefnherbergi II: Með parketi á gólfi og fataskáp.Svefnherbergi III: Með parketi á gólfi.Baðherbergi: Með flísum á gólfi og veggjum, sturtuklefa, upphengd baðinnrétting með spegli og klósett.Geymsla: Stórt háaloft með glugga er fyrir ofan íbúðina í risi. Nýtist sem stór geymsla með mörgum óskráðum fermetrum.Þvottahús: Er sameiginlegt með glugga.Lóð: Sameiginleg stór lóð.Virkilega falleg sérhæð í grónu og vinsælu hverfi í Reykjavík þar sem stutt er í leikskóla, skóla og framhaldsskóla og alla helstu þjónustu og afþreyingu.- 2022 var húsið ásamt gluggum málað að utan.- 2020 var skipt um járn á þaki.- 2020 voru gerðar múrviðgerðir á úti tröppum.- 2020 skipt um parket í íbúðinni.- 2016 var skipt um innihurðar.- 2013 til 2018 var skipt um glugga í íbúðinni.- 2006 var endurnýjað dren.- 2006 var skólp yfirfarið og fóðrað.- 2006 var rafmagnstafla og raflagnir endurnýjaðar.Gimli fasteignasala hefur stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti á fimmta áratug og er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð árið 1982. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki, traust og góð þjónusta. Gimli, gerir betur...Gimli er staðsett á 2. hæð á Grensásvegi 13, 108 Reykjavík og á 2. hæð á Eyravegi 29, Selfoss.Opnunartími frá kl. 10 -16 alla vikra daga, sími: 570 4800, tölvupóstur: Heimasíða Gimli fasteignasöluGimli á FacebookUm skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.